Fréttir

true

Sanngjarnt jöfnunarmark Skagamanna í blálokin

Skagamenn tóku í gærkvöldi á móti Víkingi Reykjavík í fyrsta heimaleik sínum á tímabilinu í Pepsí Max deildinni. Miðað við gang leiksins þá var það sanngjarnt að Skagamenn náðu að jafna þegar Þórður Þorsteinn Þórðarson skoraði úr vítaspyrnu á 89. mínútu með föstu skoti í vinstra hornið. En vítaspyrnan var dæmd á Kára Árnason varnarmann…Lesa meira

true

Tap hjá Kára í fyrsta leik

Knattspyrnufélagið Kári byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í 2. deild, þegar þeir mættu KF í Akraneshöllinni í gær. Þeir máttu sætta sig við tap 2:3. En það hafði vissulega áhrif að Andra Júlíussyni var vísað af leikvelli á 69. mínútu með sitt annað gula spjald í leiknum fyrir litlar sakir í…Lesa meira

true

Fyrsti heimaleikur Skagamanna í kvöld

Fyrsti heimaleikur Skagamanna á þessu tímabili í Pepsi Max deild karla verður í kvöld á Akranesvelli og hefst kl. 19.15. Víkingur Reykjavík eru mótherjar Skagamanna en í fyrstu umferðinni unnu þeir Keflvíkinga 1-0 á meðan Skagamenn töpuðu fyrir Valsmönnum 2-0. Einungis mega 200 manns mæta á leikinn sökum sóttvarnareglna og verða þeir í merktum sætum…Lesa meira

true

Slökkviliðsmenn komnir á bakvakt vegna óvissuástands

Mikill viðbúnaður er nú hjá Slökkviliði Borgarbyggðar vegna óvissustigs almannavarna, sem lýst var yfir fyrr í vikunni vegna þurrka og eldhættu um allt suðvestanvert landið. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra er nú búið að festa fjóra menn á bakvaktir á fjörum starfsstöðvum Slökkviliðs Borgarbyggðar allar helgar meðan óvissustigið ríkir. Sömu sögu er að segja…Lesa meira

true

Tvö ár frá frá bruna í Fjöliðjunni á Akranesi – myndasyrpa

Í dag eru rétt tvö ár frá bruna sem varð í húsnæði Fjöliðjunnar, vinnu- og hæfingarstaðar, við Dalbraut á Akranesi. Nokkru eftir brunann var starfsemi vinnustaðarins komið fyrir í bráðabirgðahúsnæði í Akurshúsinu við Smiðjuvelli. Aðstaðan þar er góð svo langt sem hún nær, að sögn starfsfólks, en engan veginn hentug fyrir mismunandi þarfir allra sem…Lesa meira

true

Boða tilslakanir á sóttvarnareglum frá 10. maí

Fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns, sund- baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns. Þá verður opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Einnig verða…Lesa meira

true

Loðnuafurðir gera aprílmánuð að metmánuði í útflutningi

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,3 milljörðum króna í apríl síðastliðnum samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í vikunni. Það er tæplega 54% aukning í krónum talið miðað við apríl í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði um 5% sterkara nú í apríl en í sama mánuði í fyrra og er aukningin þar með meiri í erlendri…Lesa meira

true

Viðgerðar hafnar á ytra byrði Innra-Hólmskirkju

Nú í vikubyrjun hófst viðgerð á Innra-Hólmskirkju við Hvalfjörð. Að sögn séra Þráins Haraldssonar sóknarprests er fyrirhugað að gera við steypuskemmdir og mála kirkjuna, skipta um þak og laga tréverkið í turninum. Vonir standa til að viðgerðum geti lokið á næsta ári, en það ár verður kirkjan 130 ára. Upprunalega var Innra-Hólmskirkja byggð úr timbri,…Lesa meira

true

Naumt tap Skagans í Lengjudeild kvenna

Meistaraflokkur ÍA spilaði sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni í gærkveldi þegar þær mættu Gróttu á Seltjarnarnesi. Skagastúlkur byrjuðu leikinn vel og á 17. mínútu skoraði Védís Agla Reynisdóttir fyrsta mark leiksins. ÍA hefði getað bætt við fleiri mörkum í fyrri hálfleik en mistókst það og staðan í hálfleik 0-1. Gróttustúlkur mættu ákveðnar til leiks í…Lesa meira

true

Martraðarbyrjun Ólsara

Víkingur Ólafsvík byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum gegn Fram í Lengjudeildinni í Safamýrinni í gærkveldi. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson skoraði mark úr víti á fyrstu mínútu leiksins og lagði svo upp þau tvö næstu fyrir þá Tryggva Snæ Geirsson og Fred Saraiva og staðan orðin 3-0 fyrir Framara eftir einungis fimm mínútna leik. Fljótlega…Lesa meira