Fréttir

true

Loðnuafurðir gera aprílmánuð að metmánuði í útflutningi

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,3 milljörðum króna í apríl síðastliðnum samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í vikunni. Það er tæplega 54% aukning í krónum talið miðað við apríl í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði um 5% sterkara nú í apríl en í sama mánuði í fyrra og er aukningin þar með meiri í erlendri…Lesa meira

true

Viðgerðar hafnar á ytra byrði Innra-Hólmskirkju

Nú í vikubyrjun hófst viðgerð á Innra-Hólmskirkju við Hvalfjörð. Að sögn séra Þráins Haraldssonar sóknarprests er fyrirhugað að gera við steypuskemmdir og mála kirkjuna, skipta um þak og laga tréverkið í turninum. Vonir standa til að viðgerðum geti lokið á næsta ári, en það ár verður kirkjan 130 ára. Upprunalega var Innra-Hólmskirkja byggð úr timbri,…Lesa meira

true

Naumt tap Skagans í Lengjudeild kvenna

Meistaraflokkur ÍA spilaði sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni í gærkveldi þegar þær mættu Gróttu á Seltjarnarnesi. Skagastúlkur byrjuðu leikinn vel og á 17. mínútu skoraði Védís Agla Reynisdóttir fyrsta mark leiksins. ÍA hefði getað bætt við fleiri mörkum í fyrri hálfleik en mistókst það og staðan í hálfleik 0-1. Gróttustúlkur mættu ákveðnar til leiks í…Lesa meira

true

Martraðarbyrjun Ólsara

Víkingur Ólafsvík byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum gegn Fram í Lengjudeildinni í Safamýrinni í gærkveldi. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson skoraði mark úr víti á fyrstu mínútu leiksins og lagði svo upp þau tvö næstu fyrir þá Tryggva Snæ Geirsson og Fred Saraiva og staðan orðin 3-0 fyrir Framara eftir einungis fimm mínútna leik. Fljótlega…Lesa meira

true

Fallið frá kaupum á Suðurgötu 108

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum 29. apríl sl. að fallast á ósk kaupanda að Suðurgötu 108, AA húsinu svokallaða, um að falla frá samningi um kaup á eigninni. Húsið hefur verið nokkurn tíma í söluferli. Upphaflega var sett sem skilyrði að söluverð hússins skyldi vera að lágmarki 40 milljónir króna en síðan var ákveðið…Lesa meira

true

Dreymdi að hann væri að hjóla til Sauðárkróks

„Mig dreymdi draum í byrjun þessa árs um að ég væri að hjóla héðan úr Borgarnesi og á Sauðárkrók í Skagafirði. Þessi draumur var mér mjög minnisstæður. Ég ákvað því að hjóla þessa leið á æfingahjólinu sem er hérna í Öldunni. Taka ferðalagið í mörgum áföngum,“ segir Guðmundur Stefán Guðmundsson í samtali við Skessuhorn. Guðmundur…Lesa meira

true

Mega áfram greiða séreignasparnað inn á lán

Heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á höfuðstól íbúðalána verður framlengd fram á mitt ár 2023, ef frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis verður samþykkt á Alþingi. Úrræðið hefur verið mjög vel nýtt frá því að bráðabirgðaákvæði um málið var fyrst sett í lög um mitt ár 2014, en þannig hafa að…Lesa meira

true

Úthlutað úr Menningarsjóði Borgarbyggðar

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar kom saman til fundar 3. maí síðastliðinn og fór yfir umsóknir sem höfðu borist sjóðnum. Ákveðið var að veita tíu verkefnum styrki að upphæð 1.350 þúsund krónur. Eftirtalin verkefni hlutu styrk úr sjóðnum: Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir – Kúlan – óstaðbundið safn 150.000 kr. Leikdeild Umf. Skallagríms – Fjáröflunar- og skemmtikvöld 200.000 kr.…Lesa meira

true

Nýtur þess að eiga dúkkubörn

Hún Áslaug Þorsteinsdóttir starfar í Fjöliðjunni á Akranesi og sinnir þar einkum móttöku og talningu drykkjarvöruumbúða. Áslaug hefur frá árinu 2004 búið í íbúð sem Öryrkjabandalagið á við Eyrarflöt á Akranesi en hún er Borgfirðingur að ætt og uppruna en fluttist á Akranes þegar hún hóf nám í Fjölbrautaskóla Vesturlands árið 1993. Áslaug hefur verið…Lesa meira

true

Heil umferð í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í kvöld

Fyrsta umferð Lengjudeildar kvenna hefst í kvöld með fimm leikjum. Á Vivaldi vellinum úti á Seltjarnarnesi mætast Grótta og ÍA og hefst leikurinn kl. 19.15. Skessuhorn heyrði í Aroni Ými Péturssyni, sem er í þjálfarateymi Skagamanna, og segir hann að Lengjudeildin sé alltaf að verða sterkari og sterkari og bilið milli liða að jafnast út.…Lesa meira