Fréttir

true

Valur deildarmeistari í Domino’s deild kvenna

Valsstúlkur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í gær þegar þær unnu sannfærandi sigur á Snæfelli þegar liðin áttust við í 20. umferð Domino’s deild kvenna í körfuknattleik. Leikurinn fór fram á Hlíðarenda í gærkvöldi. Heimakonur tóku fljótt yfirhöndina í leiknum og komu sér snemma í vænlega stöðu. Liðið leiddi með níu stigum eftir fyrsta fjórðung og áttu…Lesa meira

true

Mikill sjarmi við það að fara út á land

Knattspyrnufélagið Kári leikur í 2. deild karla fjórða árið í röð í sumar en liðið endaði í sjöunda sæti í fyrra. Ásmundur Guðni Haraldsson var ráðinn þjálfari Kára í nóvember. Við settumst niður með Ása í smá spjall og fórum yfir fótboltasumarið sem framundan er: Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið? „Það hefur gengið heilt yfir ágætlega…Lesa meira

true

Hrópandi kona í Hafnarfjalli

Þessi mynd var tekin af Hafnarfjallinu í gærkvöldi þegar síðustu geislar sólar teygðu sig í norðurhlíðar fjallsins. Ef vel er rýnt í myndina má sjá hárprúða hrópandi konu með dálítinn skakkann munn, líkt og hún vilji segja eitthvað við Borgnesinga. Myndina tók Ólafur Adolfsson lyfsali þar sem hann var á akstri á Mýrunum í gærkveldi.Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 52 á hálfu ári

Á sex mánaða tímabili fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 52, eða um 0,3%. Þann 1. maí síðastliðinn voru íbúar í landshlutanum 16.757. Íbúum fjölgaði í fjórum sveitarfélögum af tíu. Íbúum á Akranesi fjölgaði um 67 frá því 1. desember 2020, eru nú 7.732. Fjölgunin er 0,9%. Hlutfallslega mest fjölgar þó íbúum í Helgafellssveit þar sem…Lesa meira

true

Sigurfari, siglingafélag Akraness í miklum vexti

Sigurfari, siglingafélag Akraness, hefur verið í miklum vexti síðan félagið var stofnað árið 2016. Mikil gróska hefur verið í starfinu og hefur félagið staðið fyrir siglinganámskeiðum fyrir tíu til fjórtán ára krakka undanfarin sumur auk þess sem Siglingasamband Íslands hefur staðið fyrir siglingabúðum á Akranesi í samstarfi við félagið. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Guðmundi…Lesa meira

true

Algjör forréttindi að vinna fyrir Víking

Víkingur Ólafsvík hefur spilað í Lengjudeildinni í knattspyrnunni síðustu þrjú tímabil en liðið féll úr Pepsi deildinni árið 2017. Í fyrra lenti liðið í níunda sæti undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Gunnar Einarsson tók við liðinu eftir síðasta keppnistímabil og við heyrðum í honum hljóðið. Nú hafa orðið miklar breytingar á liði Víkings frá því í…Lesa meira

true

Flöskuskeyti fór þvert yfir Hvalfjörðinn

Brynja Lyngdal Magnúsdóttir fann flöskuskeyti í fjörunni milli Galtarvíkur og Galtarlækjar í Hvalfjarðarsveit í síðustu viku. Lovísa Hind Þorsteinsdóttir, sem er sjö ára gömul, sendi skeytið af stað frá Hvalfjarðareyri í Hvalfirði í febrúar síðastliðnum. Skeytið hefur því farið þvert yfir Hvalfjörðinn og komið að landi handan fjarðar.Lesa meira

true

Verkefnið Hjólað í vinnuna hefst í dag

Í dag, miðvikudaginn 5. maí, mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefja heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í nítjánda sinn. Verkefnið stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 25. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga…Lesa meira

true

Köttur fannst eftir átta ára útlegð

Á vef Villikatta á Vesturlandi er sagt frá því að nýverið fannst köttur á Akranesi, sem upphaflega átti heimili sitt í Reykjavík. Kötturinn hafði þá verið í átta ár á flækingi á Akranesi og ekki vitað til að hann hafi átt fast heimili allan þennan tíma. „Haft var samband við okkur vegna kattar sem hélt…Lesa meira

true

Heimilar slátrun beint frá býli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum sem heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil. Í reglugerðinni er kveðið á um að dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun…Lesa meira