Fréttir

true

Köttur fannst eftir átta ára útlegð

Á vef Villikatta á Vesturlandi er sagt frá því að nýverið fannst köttur á Akranesi, sem upphaflega átti heimili sitt í Reykjavík. Kötturinn hafði þá verið í átta ár á flækingi á Akranesi og ekki vitað til að hann hafi átt fast heimili allan þennan tíma. „Haft var samband við okkur vegna kattar sem hélt…Lesa meira

true

Heimilar slátrun beint frá býli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum sem heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil. Í reglugerðinni er kveðið á um að dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun…Lesa meira

true

Framlengja sóttvarnareglur um viku

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum og skólastarfi um eina viku, en að óbreyttu áttu þær að gilda til morgundagsins, 5. maí. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis. Í minnisblaði til ráðherra segir hann allar líkur á því að forsendur verði fyrir því að ráðast í afléttingar…Lesa meira

true

Dimmiterað í FVA

Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi halda í dag lokahóf sitt, dimmisjón. Venju samkvæmt hófst fögnuðurinn á því að nemendur buðu kennurum og öðru starfsfólki skólans upp á morgunverð í sal skólans. Að því búnu lögðu útskriftarnemendur af stað í skemmtiferð þar sem hópurinn mun gera sér glaðan dag.Lesa meira

true

Sætaskipti á Akranesvelli

Hafist var handa fyrir síðustu helgi að setja upp ný sæti í hvítum lit í stúkunni á Akranesvelli. Alls er búið að setja upp um 250 sæti í stúkunni þegar þetta er skrifað og allt kapp lagt á að framkvæmdum verði lokið fyrir fyrsta heimaleik Skagamanna næsta laugardagskvöld. Þá þarf einnig að merkja öll sæti…Lesa meira

true

Sindratorfæran verður í beinni á laugardaginn

Næstkomandi laugardag verður Sindratorfæran á Hellu, en það eru Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Umf. Heklu sem standa að keppninni líkt og undanfarin ár. Þetta er í fyrsta skipti í rúmlega 50 ára sögu torfærunnar að hún er einungis sýnd í beinni útsendingu. Skjáskot er fyrirtækið sem ætlar að koma þessu heim í stofu til…Lesa meira

true

Efnt til myndbandakeppni um birki

Átak til að auka útbreiðslu birkiskóga, með söfnun og sáningu á birkifræi, hófst á síðasta ári. Fjöldi fólks tók þátt í því og umtalsverðu magni af birkifræi var safnað. Til að glæða enn frekar áhuga landsmanna var ákveðið að efna til myndbandakeppni meðal grunn- og framhaldsskólanema. Keppnin hófst í lok apríl og lýkur 30. september.…Lesa meira

true

Samtakamátturinn ótrúlegur – alls safnaðist á níundu milljón króna

Síðastliðinn laugardag fór fram viðburðurinn „Stokkið fyrir Svenna“ sem var áheitasöfnun í Akraneshöfn. Það var Árgangur 71 á Akranesi (Club 71) sem stóð fyrir viðburðinum. Tilgangurinn var að safna áheitum fyrir einn úr árganginum, Sveinbjörn Reyr Hjaltason, sem lenti í alvarlegu slysi í fyrra. Markmiðið var að ná að safna þremur milljónum til kaupa á…Lesa meira

true

Breiðablik fær bikar í kvöld eftir leik við Skallagrím

Karlalið Breiðabliks tryggði sér sigur í 1. deild karla í körfubolta eftir leik sem spilaður var á föstudaginn – þar með sæti í Domino’s deild karla á næstu leiktíð. Breiðablik leikur gegn Skallagrími í lokaumferð 1. deildar karla kl. 19:15 í kvöld, en eftir leikinn munu Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Guðbjörg Norðfjörð 1.…Lesa meira

true

Breyttur opnunartími Guðlaugar

Um síðustu helgi tók við sumaropnunartími í Guðlaugu við Langasand á Akranesi. Í sumar verður laugin opin alla daga vikunnar: Á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum frá kl. 12-20, á miðvikudögum og laugardögum frá kl. 10-18 og á sunnudögum frá kl. 10-20. Miðað við gildandi sóttvarnareglur geta nú 20 manns verið ofan í lauginni í…Lesa meira