Fréttir

true

Hjálpar fólki að leysa úr vandamálum með eigin lífssögum

Ólöf María Brynjarsdóttir ólst upp í Borgarnesi og bjó þar til 19 ára aldurs. Hún lýsir sér sem konu með breitt áhugasvið og segist þurft að taka sinn tíma til að finna sér farveg í lífinu. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Ólöfu Maríu á kaffihúsi og ræddi við hana um hvernig hún fann sig og…Lesa meira

true

Góð heimsókn til Sundfélags Akraness

Anton Sveinn McKee, sundmaður ársins á Íslandi og einn af fremstu bringusundsmönnum heims, heimsótti tvo elstu sundhópa Sundfélags Akraness á mánudaginn. Anton Sveinn ræddi við sundmennina um markmiðasetningu og mikilvægi svefns og hugarþjálfunar auk þess sem hann fór yfir tækniatriði eins og stungur, snúninga og hvernig megi synda hraðar í bringusundi. Anton Sveinn endaði heimsóknina…Lesa meira

true

Ræddu við íbúa um eldvarnir og kynntu búnað

Félagar í Slökkviliði Borgarbyggðar tóku sér nýverið stöðu við Hyrnutorg í Borgarnesi og minntu íbúa á mikilvægi forvarna í kringum jól og áramót. Leyfðu þeir fólki að slökkva eld í potti með eldvarnarteppi, kynntu ýmsan eldvarnarbúnað og auk þess nýja körfubíl slökkviliðsins. „Þótt við séum stórskemmtilegir, að okkar mati, er ekkert skemmtilegt að þurfa að…Lesa meira

true

Hefur í 45 ár bakað ofan í Borgnesinga

Sigurgeir Erlendsson, eða Geiri bakari eins og hann er oftast kallaður, hefur bakað snúða, vínarbrauð og ástarpunga ofan í Borgnesinga síðan hann flutti í bæjarfélagið árið 1975, þá aðeins 19 ára gutti. Geiri kemur frá Siglufirði og eftir útskrift úr gagnfræðiskólanum á Sigló fór hann rakleiðis að læra bakarann í Iðnskólanum á Siglufirði. „Ég vissi…Lesa meira

true

Samveran það sem fólk metur mest við jólahátíðina

Í síðustu viku var spurt hér á vef Skessuhorns hvað væri það besta við jólin. Flestir, eða 58% svarenda, sögðu það vera samveruna með fjölskyldu og vinum. Jólastemningin varð í öðru sæti með 15% en 14% svarenda sögðu ekkert gott við jólin. 10% sögðu að maturinn væri það besta og 3% kusu pakkana. Kökurnar og…Lesa meira

true

Er mikill Hólmari í hjarta sínu

Sara Hjörleifsdóttir er fædd og uppalin í Stykkishólmi. Þar gekk hún í grunnskóla áður en hún flutti í burt til að fara í framhaldsnám en leiðin lá þó aftur í Stykkishólm þar sem hún hefur nú rekið veitingastaðinn Sjávarpakkhúsið í sjö ár. Blaðamaður Skessuhorns leit við á Sjávarpakkhúsinu í lok síðasta mánaðar og ræddi við…Lesa meira

true

Emanúel hættir nú ökukennslu í Snæfellsbæ

Flestir íbúar í Snæfellbæ þekkja Emanúel Ragnarsson sem ávallt er þekkur undir gælunafninu Emmi Ragnars. Hann hefur verið ökukennari í yfir 35 ár en er nú að hætta kennslu vegna aldurs, orðinn 78 ára. „Já, það er kominn tími til að hætta þessu, komið gott,“ segir Emmi og brosir sínu breiðasta. „Ætli maður fari bara…Lesa meira

true

Guðlaug sæmd Umhverfisverðlaunum Ferðamálastofu

Guðlaug við Langasand á Akranesi er handhafi Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2019. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn við Guðlaugu nú síðdegis í dag. Það var Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri sem afhenti verðlaunin og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri veitti þeim viðtöku fyrir hönd Akraneskaupstaðar. Er þetta í 25. skipti sem Ferðamálastofa stendur að útnefningu umhverfisverðlaunanna, en þau…Lesa meira

true

Ferðalangar úr sveitinni á göngu í kringum Mont-Blanc

Öldum saman hefur hið ógnvekjandi fjall Mont-Blanc vakið bæði aðdáun og ástríðu. Fjallið með tuttugu og átta tinda í yfir 4000 metra hæð og spannar það fjögur hundruð ferkílómetra svæði. Sextíu og fimm jöklar falla fram um þetta land fannar og fjalla. Fjallgarðurinn er umkringdur sjö dölum sem tengja Mont-Blanc við þrjú lönd í hjarta…Lesa meira