Fréttir

true

Óbreyttir stýrivextir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á miðvikudag að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, jafnan kallaðir stýrivextir, verða því áfram 3%. Hagvöxtur var 0,2% fyrstu níu mánuði ársins, sem er aðeins meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í nóvember. Í meginatriðum hefur efnahagsþróun það sem af er ári hins…Lesa meira

true

Jólablaðið í næstu viku

Miðvikudaginn 18. desember kemur Jólablað Skessuhorns út. Það er stærsta blað ársins hjá útgáfunni og jafnframt síðasta tölublað ársins. Vegna umfangs blaðsins eru lesendur hvattir til að senda efni tímanlega inn til birtingar, á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is. Þarf það að berast í síðasta lagi föstudaginn 13. desember. Sömuleiðis þurfa auglýsingapantanir að berast fyrir sama tímafrest. Netfangið…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Dölum frá kl. 17:00

Rafmagnsnotendur í Dalabyggð, það er að segja í Búðardal, Laxárdal, Suður-Dölum og Skógarströnd, mega búast við því að straumlaust verði í 30 til 45 mínútur frá kl. 17:00 núna á eftir vegna viðgerðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rarik. Þar segir einnig að þegar rafmagn kemur aftur á um Skógarstrandarlínu megi búast við að…Lesa meira

true

Síðasta jólatréð frá Drammen

Víða um landshlutann voru jólaljós tendruð á jólatrjám fyrstu vikuna í aðventu. Hólmarar söfnuðust saman og kveiktu ljósin á trénu frá Drammen í Hólmagarði síðasta miðvikudag. Veðrið var með besta móti og margt um manninn. Tónmenntanemar Grunnskólans í Stykkishólmi sungu jólalög, kvenfélagskonur seldu heitt súkkulaði og smákökur, jólasveinarnir kíktu í heimsókn og gáfu börnunum mandaríur…Lesa meira

true

Margir á netinu í óveðrinu

Gagnaumferð um ljósleiðara Gagnaveitu Reykjavíkur var rúmum fjórðungi meiri en venjulega í óveðrinu á þriðjudagskvöld. Náði umferðin hámarki kl. 21:25. Þá var straumur gagna um ljósleiðarann 26,1% meiri en á sama tíma en tæpri viku fyrr, miðvikudagskvöldið 3. desember og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá veitum. „Ljósleiðarinn nær til um…Lesa meira

true

Ert þú á lista yfir óþekka?

Skyrgámur og Bjúgnakrækir verða í KM þjónustunni í Búðardal á morgun, föstudaginn 13. desember, þar sem þeir ætla að taka stöðuna í upphafi vertíðar. Í tilkynningu sem Skyrgámur sendi Skessuhorni hvatti hann bræður þeirra ennig til að mæta. „Það eru nokkur atriði sem við þurfum að fara í gegnum, til dæmis óþekktarlistann, en þar hefur…Lesa meira

true

Bláa ský er fyrsta bók Sólveigar Ásgeirsdóttur

Gefur hollvinasamtökum allan ágóðann af sölunni Sólveig Ásgeirsdóttir í Stykkishólmi sendi í lok nóvember frá sér sína fyrstu bók. Ber hún heitið Bláa ský og er safn prósaljóða og smásagna sem Sólveig hefur skrifað í áranna rás. „Ég hef lengi verið að skrifa en hingað til hefur það lent ofan í skúffu, eins og hjá…Lesa meira

true

Skallagrímskonur mæta ÍR í bikarnum

Dregið var í átta liða úrslit Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik í hádeginu í gær. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 19. og 20. janúar næstkomandi. Sigurvegarar þessara leikja komast í fjögurra liða úrslit sem fara fram í Laugardalshöll dagana 13. og 14. febrúar næstkomandi. Skallagrímskonur voru einar eftir í pottinum af Vesturlandsliðunum.…Lesa meira

true

Rannsakar sögutækni og tölvuleikjaþróun í Sílikondal

Elín Carstensdóttir tók nýlega við starfi lektors í UC Santa Cruz í Kaliforníu     Elín Carstensdóttir ólst upp á Akranesi  Hún gekk í Brekkubæjarskóla og síðan Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut. Eftir það lá leiðin í Háskóla Reykjavíkur þar sem Elín lærði tölvunarfræði og útskrifaðist með BS gráðu vorið 2013.…Lesa meira

true

Vesturland slapp vel frá veðrinu

Aftakaveður gekk yfir landið í gær og gengur enn yfir landið í dag, en spáð hafði verið mesta óveðri síðustu ára. Víða um land varð mikið eignatjón og björgunarsveitir sinntu meira en sex hundruð útköllum í gær og í nótt. Versta veðrið er nú gengið niður hér um vestanvert landið en slæmt veður er fyrir…Lesa meira