Fréttir

true

Með takmarkaðan þátttökurétt á næsta ári

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 50. sæti á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem fram fór í Kenýa um síðustu helgi. Eftir að hafa lyft sér upp í 27. sæti mótsins með frábærum þriðja keppnishring lauk hún keppni með sveiflukenndum hring í gær. Eftir níu holur var Valdís á sex höggum yfir pari, eftir að hafa…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun á morgun

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir mest allt landið á morgun. Spáð er norðaustan og síðan norðan rok og jafnvel ofsaveður 23-30 m/s við Breiðafjörð frá hádegi á morgun og fram á miðvikudag. Á Faxaflóasvæðinu er útlit fyrir norðan rok 20-28 m/s. Líkur eru á snjókomu og skafrenningi með vindinum og skyggni og færð…Lesa meira

true

Borgnesingar burstaðir

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn Breiðabliki, 131-89, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Leikið var í Kópavogi. Heimamenn höfðu undirtökin frá fyrstu mínútu. Þeir voru öflugri í upphafsfjórðungnum og leiddu með tíu stigum að honum loknum, 32-22. Þeir héldu síðan áfram að auka forskot sitt jafnt og þétt í…Lesa meira

true

Misstu af lestinni eftir hléið

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn Selfossi þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestirnir undirtökunum í þriðja leikhluta og sigruðu að lokum með 104 stigum gegn 81. Snæfellingar leiddu í upphafi leiks áður en gestirnir tóku góða rispu og komust átta stigum…Lesa meira

true

Jöfnun dreifikostnaðar raforku er réttlætismál

Sérstök umræða um jöfnun dreifikostnaðar á raforku fór nýverið fram á Alþingi. Málshefjandi var Halla Signý Kristjánsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, en til andsvara var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra. Halla Signý benti á að landsmenn sitja ekki við sama borð þegar kemur að flutningi raforku til síns heima og að núverandi jöfnunargjald sé…Lesa meira

true

Héldu fund númer 3427 á ritstjórn Skessuhorns

Skessuhorn fær jafnan góða gesti í heimsókn á ritstjórn. Nýverið héldu félagar í Rótarýklúbbi Akraness kvöldfund sinn þar. Mættu með nesti en fengu að því loknu kynningu á starfsemi Skessuhorns og svör við ýmsum fyrirspurnum um rekstrarumhverfi fjölmiðla. Fram kom hjá Jóhannesi Simonsen klúbbmeistara að téður fundur væri sá númer 3427 frá upphafi. Mættir voru…Lesa meira

true

Bifreiðaþjónusta Ægis er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki í Rifi

Við Hafnargötu 12 í Rifi er Bifreiðaverkstæði Ægis slf. til húsa. Verkstæðið er rekið sem fjölskyldufyrirtæki og hefur verið starfrækt síðan 1. apríl 1986 af hjóninunum Ægi Ingvarssyni og Ástu Dóru Valgeirsdóttur, en nú er sonur þeirra Ingvar Valgeir að mestu tekinn við rekstrinum. Ástæðuna fyrir því að opnað var fyrsta apríl segir Ingvar vera…Lesa meira

true

Skessuhorn til jóla

Útgáfa Skessuhorns verður með hefðbundnu sniði til jóla, miðvikudagana 11. og 18. desember. Árlegt Jólablað er það síðara og að venju efnismeira en flest önnur blöð ársins. Vegna umfangs og stærðar þarf efni og pantanir auglýsinga í jólablað að berast í hús í síðasta lagi föstudaginn 13. desember. Fyrsta blað nýs árs kemur síðan út…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Snæfellskonur eru úr leik í Geysisbikar kvenna í körfuknattleik, eftir tap gegn ríkjandi bikarmeisturum Vals. Leik lauk í Stykkishólmi núna fyrir skemmstu með sjö stiga sigri Vals, 62-69. Snæfellskonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum  og komust í 18-8 seint í leikhlutanum. Þá tóku Valskonur við sér og náðu að minnka muninn niður í eitt stig áður…Lesa meira

true

Lyfti sér upp um 30 sæti

Valdís Þóra Jónsdóttir lék þriðja hringinn á Magical Kenya Ladies Open mótinu á Evrópumótaröð kvenna í dag. Fyrir hringinn var hún á sex höggum yfir pari og sat í 57. mótsins. Hún lék afar vel í dag, fór þriðja hringinn á þremur undir pari og lyfti sér upp um hvorki fleiri né færri en 30…Lesa meira