Fréttir

true

Búið að fjarlægja gamla bílastæðið við Kirkjufell

Verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafa fjarlægt gamla bílastæðið við Kirkjufell þar sem framkvæmdir við veginn eru nú langt komnar. Nú er nýja bílastæðið komið í fulla notkun en vegurinn var lækkaður til að minnka slysahættu við innkeyrsluna á nýja bílastæðið. Nú á bara eftir að klára að ganga frá bæði gamla og nýja stæðinu sem…Lesa meira

true

Gáfu bangsa í sjúkrabílinn

Nokkrar duglegar prjónakonur í Félagi eldri borgara í Grundarfirði hafa undanfarið unnið hörðum höndum að því að prjóna litla bangsa fyrir börn. Bangsana gáfu þær svo í sjúkrabíl Grundarfjarðar þar sem að þeir munu koma að góðum notum. Það voru þeir Tómas Freyr Kristjánsson og Þorkell Máni Þorkelsson sjúkraflutningamenn sem veittu böngsunum viðtöku af þessum…Lesa meira

true

Skýrsla um Hálendisþjóðgarð afhent ráðherra

Nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands skilaði Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra í dag skýrslu sinni um þjóðgarð á miðhálendinu. Í nefndinni sátu fulltrúar allra þingflokka á Alþingi, Sambands íslenskra sveitarfélaga, umhverfis- og auðlindaráðuneytis og forsætisráðuneytis. Í skýrslunni er lagt til að Hálendisþjóðgarður verði á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar, það er…Lesa meira

true

Dópið drýgt með eldgömlu verkjalyfi og ormalyfi fyrir dýr

Lögreglan á Vesturlandi fékk nýlega niðurstöðu frá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands. Þangað sendi lögregla sýni til rannsóknar, tæpt gramm af hvítu dufti sem var talið að væri kókaín. Efnið var gert upptækt af ökumanni sem stöðvaður var fyrr á árinu, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sannarlega reyndist fíkniefnið…Lesa meira

true

Ríkið sýknað af kröfu skólameistara

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. RÚV greinir frá. Ágústa stefndi ríkinu vegna embættisfærslna Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Taldi hún að ráðherra hefði ekki staðið rétt að því að auglýsa starf hennar laust til umsóknar. Krafðist hún þess að viðurkennt yrði…Lesa meira

true

FM Óðal fer í loftið á mánudaginn

Vinna nemenda Grunnskólans í Borgarnesi við jólaútvarpið, FM Óðal 101,3, hófst um miðjan nóvember. Útvarpið er eitt stærsta verkefni nemendafélags grunnskólans og á sér nærri 30 ára sögu. Efni nemenda yngsta stigs og miðstigs var hljóðritað í Óðali í síðustu viku en þættir unglingastigs verða hins vegar að mestu í beinni útsendingu, venju samkvæmt. Stjórn…Lesa meira

true

Notalegar stundir á aðventu

Alla sunnudaga fram að jólum verður boðið upp á veisluhlaðborð í Blómasetrinu Kaffi kyrrð við Skúlagötu í Borgarnesi. Opið er í hlaðborðið frá klukkan 14 til 18. „Komið inn í hlýjuna, yljið líkama og sál og eigum notalega stund saman á aðventunni,“ segja þær mæðgur Svava og Katrín Huld í tilkynningu.Lesa meira

true

Jólablóðsöfnun á Akranesi í dag

„Þá er komið að jólasöfnun Blóðbankans á Akranesi,“ segir í tilkynningu. „Við verðum með Blóðbankabílinn fyrir utan Ráðhúsið Stillholti 16-18 frá kl. 10:00 – 17:00 í dag, þriðjudaginn 3. desember.Lesa meira

true

Móta tillögur um líknandi meðferð

Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði til að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum. Hlutverk starfshópsins var að taka saman yfirlit yfir þá þjónustu sem stendur til boða sjúklingum á þessu svæði sem eru í þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð, greina núverandi…Lesa meira

true

Brynhildur í góðum gír á Norðurlandamótinu í sundi

Norðurlandameistaramótið í sundi fór fram í Færeyjum um liðna helgi. Brynhildur Traustadóttir úr Sundfélagi Akraness bætti sig enn og aftur í 800m skriðsundi og hafnaði í fjórða sæti á mótinu, en þetta er í þriðja skiptið í haust sem hún bætir tíma sinn í 800 metrum. Hún synti á tímanum 9.09:37. Í 400m skriðsundi synti…Lesa meira