Fréttir

true

Eftirlit með rjúpnaskyttum

Lögreglan á Vesturlandi fór með Landhelgisgæslu Íslands í rjúpnaveiðieftirlit á laugardaginn. Flogið var með þyrlu gæslunnar yfir Hraundal og nærliggjandi dali, Langavatnsdal auk friðlandsins í Geitlandi. Sást til veiðimanna, en ekki í friðlandinu. Tveir kyrrstæðir bílar voru við friðlandið en þar sást ekki til veiðimanna. Annars staðar sáust fleiri bifreiðar, en á svæðum þar sem…Lesa meira

true

Logi og Heiðar sigurvegarar BB

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk síðastliðið mánudagskvöld. Heiðar Árni Baldursson og Logi Sigurðsson leiddu mótið allan tímann og luku keppni með 62,6% skori. Anna Heiða Baldursdóttir og Ingimundur Jónsson komu næst þeim með 59,3% skor og þriðju urðu Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson með 56,4%. Við verðlaunaafhendingu kom fram að Baldur í Múlakoti ætti að fá…Lesa meira

true

Bílvelta í Hvalfirði í gær

Bílvelta varð í Hvalfirði til móts við Lambhaga kl. 16:30 í gær. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum þar sem hann valt og endaði ofan í skurði. Ökumaðurinn sat í bílnum þegar lögregla kom á vettvang og kenndi sér eymsla eftir veltuna. Hann var…Lesa meira

true

Ill meðferð á páfagaukum

Matvælastofnun hefur tekið páfagauk af eiganda á Norðurlandi vegna vanrækslu. Við eftirlit fundust tveir mjög horaðir fuglar í búri, þar af annar dauður. Ástand fuglanna mátti rekja til vanfóðrunar og vatnsleysis og var vörslusvipting framkvæmd tafarlaust, segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Bannað er að beita gæludýr illri meðferð og er ekki heimilt að skilja búrfugla…Lesa meira

true

Vinnustofa til að móta aðgerðaáætlun og stefnumótun í ferðaþjónustu

Hafin er vinna við aðgerðabundna stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til ársins 2025. Verkefnið er sameiginlegt verkefni Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Sambands sveitarfélaga, Samtaka ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðvar ferðamála. Boðað hefur verið til opinna vinnustofa í tengslum við stefnumótunina og verða slíkar vinnustofur haldnar í öllum landshlutum. Hér á Vesturlandi fer ein slík fram fimmtudaginn 28. nóvember…Lesa meira

true

Vilja að veirusýktum eldislaxi verði fargað

Stjórn Landssambands veiðifélaga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar að IPN veirusýking hafi komið upp í norskum eldislaxi í eldiskvíum Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. „Slík veirusýking hefur aldrei greinst í laxi á Íslandi enda er villti laxastofninn við Ísland með þeim heilbrigðustu í heimi. IPN veira veldur alvarlegum sýkingum í laxfiskum.…Lesa meira

true

Bætti fimmtán ára gamalt Akranesmet í sundi

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir bætti 15 ára gamalt Akranesmet á Haustmóti Fjölnis í sundi sem fram fór á laugardaginn í Laugardalnum. Þangað fór 21 sundmaður frá Sundfélagi Akraness. Mótið var fyrir sundmenn 14 ára og yngri og var gríðarlega stór hópur sem tók þátt þetta árið, 375 sundmenn frá 16 félögum um land allt. Að venju…Lesa meira

true

Uppskriftir eftirstríðsáranna komnar út á bók

Espólín bókaforlag hefur gefið út bókina Uppskriftir eftirstríðsáranna – matur úr íslenskum eldhúsum eftir stríð. Þar er á ferðinni öðruvísi matreiðslubók með aðkomu fjögurra kvenna. „Með henni er haldið á lofti merki þeirra sem löngum komu við sögu þar sem matur var gerður. Matargerð hefur breyst í aldanna rás og mun áfram taka breytingum. En…Lesa meira

true

Jólabingó Kvenfélagsins 19. júní verður á föstudaginn

Hið árlega jólabingó Kvenfélagsins 19. júní fer fram í sal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 29. nóvember kl. 20:00. Þessi viðburður hefur verið haldinn árlega í um 50 ár en Kvenfélagið 19. júní er nú fjölmennasta kvenfélag Borgarfjarðar þar sem tæplega 60 konur á öllum aldri eru félagar. Í ár verður bingóið afar glæsilegt en…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótinu í grjótglímu lokið

Íslandsmeistaramótaröðinni í grjótglímu lauk um helgina með flottu móti sem haldið var í Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA mætti með sjö sterka klifrara til móts og þeim fylgdi stór hópur áhorfenda og áhangenda. Mótið var fjórða og síðasta mótið í keppninni um Íslandsmeistartitilinn og spennan því í hámarki þegar mótið hófst. Keppendur klifruðu tuttugu leiðir, sem…Lesa meira