Fréttir

true

Fóru í æfingabúðir í Langaholt

Kirkjukór Ólafsvíkur undirbýr sig af krafti þessa dagana fyrir árlega jólatónleika sína sem fram fara í byrjun desember. Einn liður í þeim undirbúningi var að kórinn fór um síðustu helgi að Langaholti til æfinga. Tók kórinn daginn snemma á laugardeginum og voru kórfélagar mættir og byrjaðir að æfa um klukkan 10 um morguninn þar sem…Lesa meira

true

Leikdómur – Fimm stjörnu sýning sem allir ættu að sjá

Það var ekki laust við að spennu gætti meðal gesta sem mættir voru í Bíóhöllina á Akranesi síðastliðið föstudagskvöld. Framundan var frumsýning Skagaleikflokksins á söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni, stærsta verkefni sem hið gamalgróna leikfélag hafði ráðist í svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Frést hafði að stemningin meðal leikara og annarra sem þátt tóku í uppfærslunni…Lesa meira

true

Fresta um viku atkvæðagreiðslu um starfsskilyrði nautgriparæktar

Frá því var greint í dag á vef Bændasamtakanna að búið er að fresta atkvæðagreiðslu um samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar frá 19. febrúar 2016, sem undirritað var 25. október sl. og fara átti fram dagana 20.- 27. nóvember. „Bændasamtök Íslands boða hér með að nýju til atkvæðagreiðslu um samkomulagið. Atkvæðagreiðslan mun…Lesa meira

true

Kynna í samráðsgátt áform um Miðhálendisþjóðgarð

Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands á vorþingi 2020. Áformin um frumvarpið hafa nú verið kynnt og sett í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Frestur til að skila umsögn er til og með 4. desember 2019. Drög að frumvarpi um þjóðgarðinn munu einnig verða kynnt í samráðsgátt.…Lesa meira

true

Snæfellingar sigruðu í Rímnaflæði

Þeir Davíð Svanur Halldórsson og Hjörtur Sigurðsson úr félagsmiðstöðinni Afdrepi í Snæfellsbæ báru sigur úr býtum í Rímnaflæði 2019, rappkeppni unga fólksins með laginu „Leiðinlegir dagar“. Það er Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, sem stendur fyrir keppninni. Í öðru sæti varð Viktor Örn Hjálmarsson úr félagsmiðstöðinni Þrumunni með lagið „Ferillinn“ og í þriðja sæti varð…Lesa meira

true

Blindi lundinn Mundi í aðalhlutverki í nýrri bók

Ævintýri Munda Lunda, Hvuttasveinar og Fleiri Korkusögur eru allt nýjar bækur eftir Borgnesinginn Ásrúnu Magnúsdóttur. Bókin Fleiri Korkusögur er framhald af bókinni Korkusögur sem hún gaf út í fyrra ásamt systur sinni, Sigríði. Nýja bókin kom út í haust og líkt og í fyrri bókinni er aðalpersónan byggð á systurdóttur Ásrúnar: „Hún er algjör prakkarakringla…Lesa meira

true

Er þakklátur Borgfirðingum fyrir gott samstarf og ánægjuleg kynni

Gunnlaugur Auðunn Júlíusson fráfarandi sveitarstjóri í Borgarbyggð kveðst aðspurður í samtali við Skessuhorn líta glaður um öxl, eftir þrjú og hálft ár í starfi sveitarstjóra. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast íbúum í starfi og leik, en um leið er hann leiður yfir að þannig hafi farið í liðinni viku að sveitarstjórn…Lesa meira

true

Talsvert um laus hross á vegum

Nokkuð var um lausagöngu hrossa í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Að morgni þriðjudagsins 12. nóvember var tilkynnt um lausa hesta á Vesturlandsvegi til móts við Narfastaði. Síðdegis á miðvikudag var tilkynnt um laus hross undir Hafnarfjalli, en fundið var út úr því hver eigandi hrossanna var, sem kom strax á staðinn…Lesa meira

true

Dópaður á fleygiferð

Á föstudag kl. 1:30 um nótt stöðvaði lögregla ökumann á Vesturlandsvegi til móts við Ölver á 131 km/klst., en hámarkshraði þar er sem kunnugt er 90 km/klst. Lögregla fann kannabislykt af ökumanninum og framkvæmdi fíkniefnapróf. Svaraði það jákvætt við neyslu kannabiss. Var maðurinn því handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var látinn gefa…Lesa meira

true

Víkingur Ó byrjar vel í Futsal

Íslandsmótið í innanhússfótbolta, eða Futsal, hófst um síðustu helgi. Víkingur í Ólafsvík tekur þátt í Futsalinu eins og áður og spilar liðið að þessu sinni í D-riðli ásamt Kríunni og Elliða en Björnin dró sig úr keppni. Fór þessi fyrri umferð riðilsins fram í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar sunnudaginn 17. nóvember. Strákarnir í Víkingi mættu vel stemmdir…Lesa meira