Fréttir

true

Einstakur viðburður í Reykholtskirkju

Síðastliðið laugardagskvöld voru hátíðartónleikar í Reykholtskirkju til heiðurs Páli Guðmundssyni listamanni á Húsafelli. Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og Reykholtskórinn undir stjórn Viðars Guðmundssonar fluttu þar hljóðmyndir Páls, „Hjartað í fjallinu“, auk nokkurra annarra verka. Hluti efnisskrárinnar hafði verið fluttur í Hafnarborg fyrr á þessu ári. Heiti tónleikanna var sótt í kvæði Sigurðar…Lesa meira

true

Enn lækka stýrivextir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósent. Meginvextir, vextir á sjö daga bundnum innlánum sem jafnan eru kallaðir stýrivextir, verða því 3% eftir lækkunina. Er þetta fimmta vaxtalækkunin frá því í maímánuði á þessu ári. Hagvaxtarhorfur á seinni hluta árs hafa versnað frá því sem spáð var í ágúst. Hagvöxtur…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn KR, 57-81, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í Stykkishólmi í gær. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og unnu að lokum sannfærandi sigur. KR skoraði fyrstu stig leiksins og leiddi framan af fyrsta leikhluta, en Snæfellskonur voru þó…Lesa meira

true

Mannbjörg á Breiðafirði

Mannbjörg varð þegar Blíða SH sökk norður af Langeyjum á Breiðafirði um hádegið í gær. Þrír voru um borð. Báturinn datt út úr tilkynningarskyldu stjórnsvöðvar Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum og skömmu síðar barst frá honum neyðarskeyti. Þá sást einnig neyðarblys á lofti. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út þegar í stað, sem og sjóbjörgunarsveitir. Skip og…Lesa meira

true

Menntasjóður námsmanna tekur við af Lánasjóðnum

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur nú lagt fram á Alþingi nýtt frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem mun koma í stað Lánasjóðs íslenskra námsmanna.  Frumvarpið felur í sér grundvallarbreytingu á stuðningskerfi ríkisins við námsmenn, þar sem lánþegar fá 30% niðurfærslu af höfuðstól námsláns ef þeir ljúka námi innan ákveðins tíma og námsmenn með börn á…Lesa meira

true

Tilboði í Laugar rift

Kauptilboði í Laugar í Sælingsdal hefur verið rift af bjóðendum þar sem ekki náðist að fjármagna kaupin. Það voru félögin Rent-leigumiðlun og Celtic North ehf. sem áttu tilboðið, en það hljóðaði upp á 320 milljónir króna. RÚV greindi frá. Eignirnar á Laugum eru áfram í sölu, en ef ekki fæst tilboð mun sveitarstjórn endurskoða stöðuna…Lesa meira

true

ÍA og Derby mætast í kvöld

Leikur 2. flokks karla hjá ÍA og Derby Country í Unglingadeild UEFA fer fram í kvöld, miðvikudaginn 6. nóvember. Leikið verður á Víkingsvelli í Reykjavík og mun dómarinn flauta leikinn á kl. 19:00. Um er að ræða fyrri leik ÍA í annarri umferð Evrópudeildarinnar. Liðið vann sem kunnugt er sigur á Levadia Tallin frá Eistlandi,…Lesa meira

true

Kynna nýjan safndisk með lögum Óðins G Þórarinssonar

Fimmtudagskvöldið 7. nóvember stendur Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar fyrir opnu húsi og útgáfukynningu á diskinum Þá og nú sem er 37 laga tvöfaldur safndiskur með lögum Skagamannsins Óðins G. Þórarinssonar. Óðinn á nokkuð af þekktum lögum og má þar nefna Nú liggur vel á mér, Heillandi vor, Síðasti dansinn og Blíðasti blær. Undanfarið hefur hljómsveitin staðið…Lesa meira

true

Óðinshani flýgur á hafsvæði við Galapagoseyjar og heim aftur

Óðinshani er einn af fallegustu fuglunum sem koma hingað á vorin en hann er oft seint á ferð enda þarf hann að fljúga yfir þvílík höf og víðerni að fáir fuglar ná nokkru svipuðu í fari milli heimsálfa. Þetta er þó bara nýlega uppgötvað og í hópi þeirra sem drógu upp rétta farið hjá þessum…Lesa meira

true

Erilsöm helgi hjá Lögreglunni á Vesturlandi

Síðasta helgi var mjög annasöm hjá lögreglumönnum umdæmisins. Að sögn Ásmundar Kr. Ásmundssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns voru bókuð hvorki fleiri né færri en 140 mál í skráningarkerfi lögreglu um helgina og þá eru þau mál sem koma í gegnum hraðamyndavélar ekki talin með. Er það óvenju mikið í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Ásmundur segir að umferðamál hafi…Lesa meira