Fréttir

true

Ráðstefna í tilefni hálfrar aldar afmælis SSV

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi eru fimmtíu ára á þessu ári. Af því tilefni hefur verið boðað til ráðstefnu föstudaginn 15. nóvember nk. í Hjálmakletti í Borgarnesi. Í upphafi ráðstefnunnar klukkan 13 mun Sævar Kristinsson frá KPMG kynna niðurstöður úr sviðsmyndagreiningu um mögulega þróun atvinnulífs og samfélags á Vesturlandi. Í kjölfarið munu nokkrir ungir Vestlendingar kynna…Lesa meira

true

Lagðar til breytingar á almenna íbúðakerfinu

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra talaði í síðustu viku fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingu á lögum um almennar íbúðir. Þar eru lagðar til breytingar sem sníða af agnúa sem í ljós komu eftir gildistöku nýrra laga um almennar íbúðir frá 15. júní 2016. Breytingunni nú er ætlað að ná betur því markmiði að bæta húsnæðisöryggi…Lesa meira

true

Opin fundur félags- og barnamálaráðherra í Ólafsvík

Á morgun, þriðjudaginn 5. nóvember, mun Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra halda opinn fund á Sker Restaurant í Ólafsvík klukkan 11:00. Þar mun hann fjalla um húsnæðismál á landsbyggðinni. Kynntar verða þær aðgerðir sem gripið hefur verið til að undanförnu til þess að bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði og þá ekki síst á…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd stefnir á úthlutun fyrir jólin

Mæðrastyrksnefnd Akraness stefnir á að árleg jólaúthlutun fari fram föstudaginn 13. desember næstkomandi. Nú vinna konur í nefndinni að söfnun styrkja og leitar aðstoðar frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum til að gera úthlutunina mögulega. „Við stefnum á að styrkir að þessu sinni verði að mestu leyti í formi gjafakorta í matvöruverslunum,“ segir María Ólafsdóttir formaður…Lesa meira

true

Heitt vatn finnst í Ólafsdal – gjörbreytir möguleikum til heilsársrekstrar

Síðastliðinn laugardagsmorgun komu bormenn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða niður á heitt vatn skammt fyrir neðan skólahúsið í Ólafsdal. Það er Minjavernd sem stendur að uppbyggingu á staðnum og segist Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri að vatnsfundurinn á laugardaginn hafi glatt sitt gamla hjarta. „Þetta mun gjörbreyta öllum möguleikum til heilsársrekstrar í Ólafsdal en í það minnsta…Lesa meira

true

Fjalla um neyslubreytingar og áhrif á matvælaframleiðslu

Matvælalandið Ísland og Landbúnaðarklasinn standa fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu um neyslubreytingar og áhrif þeirra á matvælaframleiðslu á morgun, þriðjudaginn 5. nóvember. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum en munu allir fjalla um það hvernig breytingar á neysluhegðun almennings munu snerta matvælageirann í nánustu framtíð. Fulltrúi frá Gallup segir frá könnunum á neyslu sem benda til…Lesa meira

true

120 ár frá fæðingu Jóhannesar úr Kötlum

Í dag eru 120 ár síðan drengur fæddist drengur á Goddastöðum í Laxárdal, síðar skírður Jóhannes Bjarni Jónasson. Á Facebook síðu Byggðasafns Dalamanna er skáldsins Jóhannesar úr Kötlum minnst. „Það er vel þess virði að staldra við í dag og rifja upp eins og eitt af ljóðum hans í huganum og/eða uppgötva eins og eitt…Lesa meira

true

Úr leik í bikarnum

Skallagrímur og Snæfell töpuðu bæði Leikið var í 32 liða úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik um helgina. Snæfell og Skallagrímur léku í gærkvöldi og máttu bæði lið sætta sig við tap í sínum viðureignum. Borgnesingar töpuðu fyrir Sindra í Borgarnesi og Snæfell beið lægri hlut gegn Þór Ak. í Stykkishólmi. Spennuleikur í Borgarnesi Skallagrímsmenn höfðu…Lesa meira

true

Umsagnir um plastfrumvarp

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Frumvarpinu hefur nú verið streymt á samráðsgátt stjórnvalda þar sem fólki gefst kostur á að koma með athugasemdir til 11. nóvember nk. „Markmið frumvarpsins verður að draga úr áhrifum plasts á umhverfið og heilsu fólks.…Lesa meira

true

Guðmundur hættir að stýra Golfklúbbnum Leyni

Guðmundur Sigvaldason hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi sem framkvæmdastjóri og hefur stjórn Leynis orðið við beiðni hans. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Guðmundur hefur starfað hjá Golfklúbbnum Leyni frá árinu 2013 sem framkvæmdastjóri og leitt öfluga uppbyggingu klúbbsins undanfarin ár en aðstaða klúbbsins hefur tekið miklum breytingum…Lesa meira