Fréttir

true

Sigur eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímskonur gerðu góða ferð til Keflavíkur í gærkvöldi, þegar þær sigruðu lið Keflvíkinga, 70-75, í Domino‘s deild kvenna í körfunkattleik. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina lungann úr leiknum, en Keflvíkingar voru nálægt því að vinna upp afgerandi forskot í lokafjóðrungnum. Leikurinn var því æsispennandi undir lokin, en fór svo að lokum að Borgnesingar höfðu betur. Jafnt var…Lesa meira

true

Landsmönnum boðin drónakona

Í dag hefst árleg sala björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á neyðarkallinum og stendur hún til 3. nóvember. Að þessu sinni er neyðarkallinn björgunarsveitarkona með dróna, en þau tæki hafa björgunarsveitir í vaxandi mæli tekið í sína notkun við leit að týndu fólki. Björgunarsveitarfólk mun standa vaktina á fjölförnum stöðum og bjóða neyðarkallinn til sölu. Hagnaður af…Lesa meira

true

Villtust á göngu

Tveir göngumenn höfðu samband við Neyðarlínu eftir að hafa gengið á Þyril í Hvalfirði síðastliðið laugardagskvöld. Göngumennirnir komust klakklaust upp á fjallið en villtust á leiðinni niður. Lögreglan á Akranesi óskaði eftir aðstoð Björgunarfélags Akraness sem kom göngumönnunum til aðstoðar.Lesa meira

true

Kíkt á æfingu á Litlu hryllingsbúðinni á Akranesi

Söngleikurinn Litla hryllingsbúðin verður frumsýndur í Bíóhöllinni á Akranesi föstudagskvöldið 8. nóvember næstkomandi. Það er Skagaleikflokkurinn sem stendur í ströngu þessa dagana við æfingar og undirbúning fyrir sýninguna og af því tilefni kíkti blaðamaður Skessuhorns á æfingu síðastliðið föstudagskvöld. Litla hryllingsbúðin er verk sem sló í gegn snemma á níunda áratugnum og hefur margoft verið…Lesa meira

true

„Langaði alltaf að koma aftur“

Undanfarið hefur nokkuð borið á því að yngra fólk úr Snæfellsbæ flytji heim að nýju eftir að hafa sótt sér háskólamenntun eða reynslu fjarri heimabyggð. Kristfríður Rós Stefánsdóttir er ein þeirra. Hún flutti heim í Ólafsvík að loknu námi í íþrótta- og heilsufræðum og opnaði Crossfitstöðina Crossfit SNB í Rifi síðasta vor. Í byrjun september…Lesa meira

true

Kynntu sér starfsemi fiskvinnslu í Ólafsvík

Heimsókn forsetahjónanna til Snæfellsbæjar er nú í fullum gangi, eins og við sögðum frá hér á vefnum í morgun. Á meðfylgjandi mynd eru Eliza Reid, Guðni Th Jóhannesson og Heiðar Elvar Friðriksson verkstjóri í fiskvinnslunni Valafelli. Forsetinn og fylgdarlið hans heimsækja fyrirtæki, stofnanir og heimili á ferð sinni í dag. Á morgun verður opinber heimsókn…Lesa meira

true

Uppselt á Heima-Skaga hátíðina

Uppselt er á tónlistarhátíðina Heima-Skaga, sem haldin verður í fyrsta sinn á Akranesi næstkomandi föstudagskvöld, 1. nóvember og hefst hún kl. 20:00 í Haraldarhúsi. Á hátíðinnu munu koma fram sex listamenn sem munu spila tvisvar sinnum hver á sex stöðum á Akranesi. Á einu kvöldi verða því samtals haldnir tólf tónleikar. Miðasala á Heima-Skaga hátíðina hefur…Lesa meira

true

Hollvinir færðu HVE tólf ný sjúkrarúm að gjöf

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands færðu HVE tólf ný sjúkrarúm að gjöf. Rúmin voru afhent formlega síðastliðinn miðvikudag. Það var Steinunn Sigurðardóttir, formaður Hollvinasamtaka HVE, sem afhenti gjöfina en Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri HVE, veitti henni viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar. Andvirði gjafarinnar er 6,5 milljónir króna. Steinunn rifjaði í ávarpi sínu upp að hvatinn að stofnun Hollvinasamtaka…Lesa meira

true

Telja að endurskoða megi vernd Breiðafjarðar

Miðvikudaginn 23. október síðastliðinn stóð Breiðafjarðarnefnd fyrir fræðslu- og umræðuþingi um stöðu og framtíð Breiðafjarðar. Þingið var haldið í félagsheimilinuTjarnarlundi í Saurbæ í Dölum. Nefndin telur þarft að taka umræðuna um hvort tilefni sé til þess að endurskoða vernd fjarðarins. Í dag nýtur fjörðurinn verndar samkvæmt lögum nr. 54 frá 1995 um vernd Breiðafjarðar. Sú…Lesa meira

true

Akrasel leiðir fjölþjóðlegt verkefni um umhverfisvernd

Leiksólinn Akrasel á Akranesi sótti nýverið um ERASMUS+ styrk ásamt sex öðrum þjóðum; Noregi, Ítalíu, Búlgaríu, Grikklandi, Tyrklandi og Póllandi. Styrkurinn fékkst og fer leikskólinn með forystu í verkefninu sem ber heitið Wonders of waist (WOW). „Áherslur í verkefninu eru umhverfismennt, endurvinnsla, endurnýting og fleira. Akrasel er grænfánaleikskóli og er verkefnið sniðið að umhverfisstarfi með…Lesa meira