Fréttir

true

Drög að matsáætlun fyrir vindmyllur á Grjóthálsi

Eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni eru uppi áform um að reisa allt að sex vindmyllur á Grjóthálsi í Borgarfirði. Það eru eigendur jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð sem standa fyrir verkefninu. Nú hafa drög að matsáætlun fyrir vindmyllur á Grjóthálsi verið birt á vef VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is, og verið…Lesa meira

true

Fjallað um sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi

Annað kvöld, þriðjudaginn 22. október kl. 20, flytur Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti um sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi. Árum saman voru félagssagnfræðingar tregir til að nýta sér við rannsóknir persónulegar minningar fólks nema í mjög afmörkuðum tilgangi. Á síðari árum hefur orðið grundvallarbreyting á hugmyndum fræðimanna um stöðu…Lesa meira

true

Hvetja menntayfirvöld til að leysa erfitt ástand í FVA

Ekki er ofsagt að harðar deilur eru uppi innan veggja Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Deiluaðilar eru Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari annars vegar, en hins vegar nær allir kennarar við skólann sem lýst hafa vantrausti á störf hennar. Menntamálaráðherra ákvað í sumar að auglýsa starf skólameistara laust til umsóknar frá næstu áramótum, þegar skipunartíma núverandi skólameistara…Lesa meira

true

Ný stjórn kjörin á landsfundi Vinstri grænna

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn er á Grand hóteli um helgina var ný stjórn kjörin í flokknum. Alls barst 21 framboð í stjórn en hún er skipuð ellefu aðalmönnum og fjórum varamönnum. Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin formaður flokksins en hún hefur verið formaður frá árinu 2013. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra,…Lesa meira

true

Verkefnisstjóri í menningar- og byggðamálum

Sigursteinn Sigurðsson arkitekt hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Sigursteinn hefur síðustu átta ár rekið arkitektastofuna Gjafa í Borgarnesi en auk þess starfaði hann að sérverkefnum fyrir SSV á árunum 2012 til 2014. Hann hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í ýmsum framfara- og samfélagsmálum í heimabyggð og…Lesa meira

true

Vetraropnun Guðlaugar við Langasand

Á Langasandi er hægt að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins úr Guðlaugu sem er heit laug staðsett í grjótgarðinum við sandinn. Guðlaug er skilgreind sem náttúrulaug/afþreyingarlaug sem er opin allt árið um kring. Laugin er gjaldfrjáls og eru búningsklefar á staðnum. Vetraropnun í Guðlaugu hefur nú tekið gildi. Opið er miðviku- og föstudaga…Lesa meira

true

Agnes Joy var tekin upp á Akranesi

Íslenska kvikmyndin Agnes Joy var frumsýnd í Háskólabíói í gær. Fjölmenni var á sýningunni en um er að ræða mynd um Rannveigu sem er að upplifa kulnun í starfi og einkalífi. Þá er hjónabandið ekki vel statt og hún föst í starfi sem hún hatar og á í útistöðum við dóttur sína, Agnesi. Agnes er…Lesa meira

true

Betri bílastæði við Saxhól

Framkvæmdum á bílastæðinu við Saxhól lauk nú á dögunum en peningar í það verkefni fengust úr innviðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2019 og 2020. Var úhlutunin 6,5 miljónir fyrir árið 2019 og 23,3 milljónir fyrir árin 2020-2021. Hefur Vegagerðin séð um lagfæringarnar á veginum að Saxhól sem og bílastæðinu fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul en það er Stafnafell…Lesa meira

true

Rætt um framtíð Breiðafjarðar

Fræðslu- og umræðuþing um framtíð Beiðafjarðar, á vegum Breiðafjarðarnefndar og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, verður haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ á miðvikudaginn í næstu viku, 23. október. Dagskráin hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 16:00. Allir eru velkomnir og ókeypis aðgangur. Það er mikilvægt að skrá sig á netfangið breidafjordur@nsv.is. Sjá hér að neðan ítarlega…Lesa meira

true

Prjónahópur færir þakklætisvott

Frá því að Kaffi Emil var opnað í Grundarfirði fyrir nokkrum árum hefur vaskur hópur kvenna átt afdrep þar einu sinni í viku til að hittast og prjóna. Nú styttist í að mæðgurnar Olga Sædís Aðalsteinsdóttir og Elsa Fanney Grétarsdóttir hætti rekstri kaffihússins og því vildu þessar vösku prjónakonur færa þeim þakklætisvott fyrir prjónaaðstöðuna. Þær…Lesa meira