Fréttir

true

Hoppukastalafjör á pálmasunnudegi

Það hefur skapast hefð fyrir því að á pálmasunnudegi sé kirkjuskóli í Grundarfjarðarkirkju og eftir kirkjuskólann sé hoppukastalafjör uppi í íþróttahúsi bæjarins. Það var engin breyting á að þessu sinni þegar ærslafullir krakkar hoppuðu af gríð og erg í íþróttahúsinu. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson hefur séð um hoppukastalafjörið og var engin breyting á því í þetta…Lesa meira

true

Kosningu lýkur á morgun um búvörusamningana

Búnaðarsamtök Vesturlands minna á kosninguna um búvörusamningana, en henni lýkur á morgun 22. mars. „Kosningin á Bændatorginu verður opin til miðnættis annað kvöld, 22. mars, en þeir sem nota pappírsatkvæði verða að póstleggja þau á morgun 22. mars í síðasta lagi. Miklu skiptir að þátttaka verði sem best. Símavakt verður hjá Bændasamtökum Íslands annað kvöld. …Lesa meira

true

Óskar Þór er rósahafi vikunnar í Vetrarkærleiknum

Óskar Þór Óskarsson fékk rós vikunnar í Vetrar-Kærleik Blómasetursins – Kaffi kyrrðar í Borgarnesi. Rósina fékk Óskar fyrir, eins og segir í tilnefningunni: „Að safna heimildum í máli og myndum og varðveita þannig, á skemmtilegan og mannlegan hátt, sögu liðins tíma. Hann er snillingur og frábær náungi.“Lesa meira

true

Salti landað á Snæfellsnesi

Saltskipið Flinterdijk kom til Ólafsvíkurhafnar aðfararnótt laugardagsins. Björgunarbáturinn Björg fylgdi skipinu síðasta spölinn inn í höfnina. Þúsund tonnum af salti var skipað upp úr Flinter að þessu sinni. Það eru fiskverkanirnar Valafell ehf og KG fiskverkun sem nota mest allt saltið en einnig er töluvert magn af því geymt á lager á hafnarsvæðinu. Frá Ólafsvík…Lesa meira

true

Flutningabíll sat fastur í tæpan sólarhring

Flutningabíll með fullfermi festist í forarsvaði á Hjallahálsi í Gufudalssveit í síðustu viku. Frá þessu er greint á vefnum bb.is. Hjallaháls, sem liggur á milli Þorskafjarðar og Djúpafjarðar, er hluti af þjóðvegi 60 og var samkvæmt merkingum Vegagerðarinnar skráður opinn og greiðfær en af myndum af vettvangi að dæma má álykta að vegurinn hafi verið…Lesa meira

true

Grundfirðingar lögðu toppliðið

Körfuknattleikslið Ungmennafélags Grundarfjarðar tók á móti toppliði Laugdæla í 3. deild karla á laugardaginn. Gestirnir höfðu fram að þessu ekki tapað leik í deildinni og voru verðskuldað á toppnum. Heimamenn mættu grimmir til leiks og ætluðu að selja sig dýrt. Var jafnræði með liðunum en gestirnir leiddu þó í hálfleik.   Laugdælir urðu svo fyrir…Lesa meira

true

Áætlað að taki tuttugu ár að koma öllum raflínum í jörð

Hagnaður Rarik samstæðunnar á árinu 2015 var ríflega 2,2 milljarðar króna, nokkru lakari afkoma en árið á undan. Á aðalfundi félagsins í síðustu viku var ákveðið að greiða 350 milljónir króna í arð til eigandans sem er íslenska ríkið. Rekstrartekjur Rarik voru 13.252 milljónir króna en rekstrargjöld 10.755 milljónir. Heildareignir í árslok voru 57,7 milljarðar…Lesa meira

true

Skessuhorn degi fyrr í næstu viku

Þar sem Dymbilvikan fer í hönd þarf venju samkvæmt að flýta útgáfu Skessuhorns í næstu viku um einn dag til að blaðið berist öllum fyrir páskahátíðina. Blaðið verður því prentað á mánudagskvöldi og því dreift á þriðjudegi og miðvikudegi. Efni og auglýsingar til birtingar í síðasta blaði fyrir páska þurfa að berast í síðasta lagi…Lesa meira

true

Lilja Rafney svarar ávirðingum utanríkisráðherra

Lilja Rafneyjar Magnúsardóttir alþingismaður VG sendir nú frá sér yfirlýsingu sem hún óskar birta í fjölmiðlum: „Vegna orða Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í morgunútvarpi RÚV um að undirrituð hefði ekki gert grein fyrir hagsmunum sínum um kvótasölu sína og fjölskyldunnar þegar hún barðist fyrir breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu á síðasta kjörtímabili vil ég að eftirfarandi komi…Lesa meira

true

Kristín er rósahafi vikunnar í Vetrarkærleiknum

Kristín Thorlacius fékk rós vikunnar í Vetrar-Kærleiknum sem Blómasetrið – Kaffi kyrrð stendur fyrir. Rósina fékk hún fyrir, eins og segir orðrétt í tilnefningunni: „Umhyggjusemi, jákvæðni og lífsgleði, fyrir að leggja sitt að mörkum að menntun og fræðslu í bæjarfélaginu. Hún er traust vinkona, fróð og vel gerð. Hún er öflug kona.“Lesa meira