Fréttir

true

Eldur kom upp í báti í húsnæði Skipavíkur

Klukkan 15:30 kom upp eldur í bátnum Vesturborgu í skipasmíðastöð Skipavíkur í Stykkishólmi. Verið var að sjóða í botn bátsins, frammi við stefni hans, þegar eldurinn kom upp. Að sögn Jóns Þórs Eyþórssonar, varðstjóra hjá Lögreglunni á Vesturlandi, var báturinn inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Mikill reykur kom upp. Lögregla og Brunavörnum Stykkishólms og…Lesa meira

true

Litað á poka í vetrarfríinu

Vetrarfrí í grunnskólum eru gjarnan á þessum tíma árs og voru krakkar á Akranesi í fríi dagana 17.-21. október sl. Ýmislegt var í boði fyrir krakkana á Akranesi og fjölskyldur þeirra þessa daga, eins og ratleikur, opnir tímar hjá íþróttafélögum, námskeið í að lita á poka og boli í Smáprenti og margt fleira. Það voru…Lesa meira

true

Sigurður Jónsson ráðinn afreksþjálfari ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert samning við Sigurð Jónsson um að taka að sér starf afreksþjálfara hjá KFÍA. Sigurður hefur verið lykilmaður í starfi félagsins undanfarin ár, sem aðstoðarþjálfari mfl. karla, þjálfari 2. flokks karla ásamt því að sinna öðrum verkefnum á vegum KFÍA. „Með starfi afreksþjálfara vill KFÍA leggja enn meiri áherslu á afreksþjálfun og…Lesa meira

true

Fimmtán ára samgönguáætlun komin í kynningu

Drög að samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Um er að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun til fimmtán ára á grunni þeirrar sem samþykkt var á Alþingi síðasta vetur. Einnig er kynnt uppfærð aðgerðaáætlun fyrir fyrsta tímabilið 2020-2024. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra kynntu áætlunina á fundi í morgun. Nú…Lesa meira

true

Jól í skókassa til þess að gleðja börn í Úkraínu

Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem lifa við bágar aðstæður með jólagjöfum. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru sendar til…Lesa meira

true

Ung kona á Vesturlandi vann 124 milljónir – „Ég er nú barasta steinhissa“

Það var ung kona á Vesturlandi sem fékk draumasímtalið síðastliðinn mánudag þegar starfsmaður frá Íslenskri getspá hringdi í hana og tilkynnti henni um vinning sem hún hafði fengið á áskriftarmiðann sinn í EuroJackpot lottóinu.  „Ég er nú bara alveg steinhissa,“ voru hennar fyrstu viðbrögð þegar henni var sagt að um væri að ræða vinning upp…Lesa meira

true

Tveir seinni fundirnir um vegamál verða í dag

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa nú fyrir fundaröð um vegamál í landshlutanum. Fundirnir eru haldnir á fjórum stöðum og fóru fyrri tveir þeirra fram í gær í Stykkishólmi og Búðardal, en síðari tveir verða í dag; klukkan 17 á B59 í Borgarnesi og klukkan 20 í kvöld í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit. Á fundunum kynnir Ólafur…Lesa meira

true

Tveir í fangelsi fyrir fíkniefnaakstur

Tveir karlmenn voru í Héraðsdómi Vesturlands þriðjudaginn 15. október dæmdir til fangelsisvistar vegna aksturs undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna og fyrir akstur eftir að hafa verið sviptir ökuréttindum. Annar maðurinn var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar en hinn í 60 daga fangelsi. Báðir voru þeir sviptir ökurétti ævilangt. Of hratt, undir áhrifum og án…Lesa meira

true

Fjöldi nýrra fulltrúa sækir landsfund VG nú um helgina

Hátt í þrjúhundruð VG félagar hafa nú skráð sig á landsfund Vinstri grænna sem stendur á Grand Hótel alla helgina (18. – 20. október). Blásið er til leiks klukkan fjögur á föstudag, en þá verða kynntar skýrslur og ársreikningur hreyfingarinnar. Sérstakar móttökur á fundinum fá nýir landsfundarfulltrúar, en að þessu sinni mæta á fundinn á…Lesa meira

true

Þrjátíu daga fangelsi fyrir sviptingarakstur

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands síðastliðinn mánudag dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum eftir Esjubraut á Akranesi 9. júní 2019. Fram kemur í dómnum að samkvæmt sakavottorði hafi maðurinn hlotið einn dóm frá árinu 2014 og sjö sinnum gengist undir viðurlög lögreglu og fyrir dómi. „Með brotum sínum nú hefur…Lesa meira