Fréttir

true

Ekki lengur þörf á að sjóða vatn úr Grábrókarhrauni

„Veitur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, aflétta hér með tilmælum til viðskiptavina vatnsveitu fyrirtækisins úr Grábrókarhrauni um suðu neysluvatns,“ segir í tilkynningu sem var að berast frá Veitum. „Sýni tekin úr vatnsbólinu sjálfu og víðar úr veitukerfinu síðustu daga hafa staðist gæðakröfur og settur hefur verið upp lýsingarbúnaður við vatnsbólið sem tryggir enn frekar…Lesa meira

true

Sveitarstjórn staðfesti Teigsskógarleið

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum síðdegis í gær breytingu á aðalskipulagi hreppsins sem felur í sér að Vestfjarðavegur verði lagður eftir svokallaðri Þ-H leið. Felur hún í sér veg um Teigsskóg og þverun þriggja fjarða; Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Var skipulagsbreytingin samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Meirihluti sveitarstjórnar lagði fram þriggja síðna rökstuðning…Lesa meira

true

Styrktartónleikar fyrir ungar hetjur

Laugardaginn 26. október nk. verða styrktartónleikar fyrir Ester Eir og Ólavíu í Tónbergi sal Tónlistarskólans á Akranesi. Ester Eir og Ólavía eru ungar Skagastúlkur sem báðar glíma við erfið veikindi og mun allur ágóði tónleikanna renna til þeirra og fjölskyldna þeirra. Fram koma: Agnar Már Magnússon á píanó, Ari Bragi Kárason á trompet, Brynja Valdimarsdóttir…Lesa meira

true

Breyta afgreiðslutíma Arion banka

Útibú Arion banka í Stykkishólmi verður frá og með 1. nóvember næstkomandi opið frá klukkan 10 til 15 alla virka daga. Þessi nýi opnunartími felur í sér að útibúið verður opið í hádeginu á virkum dögum sem er breyting frá því sem verið hefur, en afgreiðslutíminn styttur um eina klukkustund í staðinn í báða enda.…Lesa meira

true

Besta birkið – rautt og grænt með kvöldskattinum í Borgarnesi

Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Rótarýklúbbur Borgarness hafa bundist höndum saman og efna til fundar miðvikudaginn 23. október næstkomandi með dr. Þorsteini Tómassyni plöntuerfðafræðingi, sem mun flytja erindi um kynbætur á íslenska birkinu. „Tekist hefur að rækta upp beinvaxið birki, sem er í senn með auknum vaxtarhraða, veðurþolið og fallegt og ný kvæmi eru þegar komin í…Lesa meira

true

Við nyrstu voga

Gissur Páll tenór og Árni Heiðar píanóleikari heimsækja Akranes og flytja íslensk sönglög af nýjum geisladiski, Við nyrstu voga, í Vinaminni á sunnudaginn. „Samstarf Gissurar Páls Gissurarsonar og Árna Heiðars Karlssonar spannar rúman áratug og hefur það verið afar farsælt. Þeir hafa nú tekið upp brot af því besta úr því samstarfi. Geisladiskurinn kemur út…Lesa meira

true

Fundað um vegamál á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir fundaröð um vegamál í landshlutanum í vikunni. Fundirnir verða haldnir á fjórum stöðum í dag og á morgun. Á þeim mun Ólafur Guðmundsson ráðgjafi kynna úttekt sína og mat á vegum á Vesturlandi. Ólafur er sérfræðingur í umferðaröryggi og hefur um árabil annast EuroRap öryggismat á vegakerfi landsins. Að…Lesa meira

true

Stelpur sem ljúga er önnur spennusaga Evu Bjargar

Bókin Stelpur sem ljúga kom út nýverið en það er önnur bók Skagakonunnar Evu Bjargar Ægisdóttur. Eva Björg gaf út sína fyrstu bók vorið 2018, bókina Marrið í stiganum. Fékk hún mikið lof fyrir þá bók sem sat lengi vel í efstu sætum á metsölulistum. Þá hlaut hún einnig glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn, verðlaun sem rithöfundarnir Yrsa…Lesa meira

true

Endurbætur á gömlum steinvegg við Ingjaldshólskirkju

Þessa dagana er unnið að endurbótum á steinsteyptum vegg sem liggur utan um kirkjugarð Ingjaldshólskirkju á Snæfellsnesi. Er veggurinn kominn til ára sinna og að hluta til fallinn niður, en framkvæmdir við hann hófust fyrst á árunum 1930 til 1936. Að ráðast í svona verkefni var mikið þrekvirki á þessum tíma, safnað var gjafafé og…Lesa meira

true

Terra er nýtt nafn Gámaþjónustunnar

Nafni Gámaþjónustunnar var breytt mánudaginn 7. október síðastliðinn. Gengur fyrirtækið nú undir nafninu Terra. „Terra er latneskt heiti jarðargyðjunnar og eitt af nöfnum plánetunnar sem er heimkynni okkar allra og vel á við, enda snýr allt okkar starf að bættri umgengni við jörðina,“ segir um nafnabreytinguna á vef fyrirtækisins. Samhliða nýju nafni var nýtt merki…Lesa meira