Fréttir

true

Byrjað er að geisla vatn úr Grábrókarveitu

Starfsfólk Veitna vann nú um helgina að prófunum og stillingum á lýsingarbúnaði í vatnsbólinu í Grábrókarhrauni. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum á fimmtudaginn var staðfest e-coli smit í neysluvatni og íbúum í kjölfarið ráðlagt að sjóða allt neysluvatn. „Enn er stefnt að því að aflétta tilmælum um suðu á neysluvatni á…Lesa meira

true

Fyrstu stigin í hús

ÍA krækti í fyrsta sigur vetrarins í 2. deild karla í körfuknattleik þegar liðið lagði Stál-úlf á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Leikurinn fór fjörlega af stað. Eins og við var að búast af liði Skagamanna voru sóknirnar hraðar og mörg þriggja stiga skot látin fljúga. Stigaskorið var mjög hátt í leiknum, sem var engu…Lesa meira

true

Heimamenn sterkari á endasprettinum

Snæfell mátti játa sig sigrað gegn Selfossi á útivelli, 75-59, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikurinn var jafn og spennandi framan af en í síðari hálfleik sigu heimamenn fram úr og sigruðu að lokum með 16 stigum. Heimamenn skoruðu fyrstu stigin en Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir komust…Lesa meira

true

Skagamenn Vesturlandsmeistarar í boccia

Vesturlandsmót í boccía fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Til leik mættu að þessu sinni aðeins tólf sveitir; ein kom frá Hvammstanga, ein frá Borgarbyggð, fjórar frá Aftanskini í Stykkishólmi, en heimamenn voru fjölmennir og tefldu sex sveitum fram. „Ljóst er að félög eldri borgara í Stykkishólmi og á Akranesi ná…Lesa meira

true

Borgfirðingar vilja beisla vindorkuna

Síðastliðið fimmtudagskvöld efndu Einar Örnólfsson bóndi á Sigmundarstöðum í Þverárhlíð og Helgi Hjörvar ábúandi á Hafþórsstöðum í Norðurárdal til kynningarfundar með nágrönnum sínum um hugsanlegan vindmyllugarð á Grjóthálsi, sem skilur að sveitir þeirra. Fundurinn var haldinn í samkomuhúsinu við Þverárrétt. Samkvæmt hugmyndum sem kynntar voru verða reistar allt að sex stórar vindmyllur á miðjum Grjóthálsinum,…Lesa meira

true

Fram á völlinn í Árbliki

Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hafa boðað til kynningarfundar um verkefnið „Fram á völlinn“ sem kemur í kjölfar verkefnisins „Gríptu boltann“ sem Framleiðnisjóður landbúnaðarins stóð að. „Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í sveitum landsins og efla þannig fjölbreytni í atvinnulífi og auka lífsgæði. Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit og…Lesa meira

true

Kynnir verkefni um núllsýn í slysum í fjallaferðum

Í kvöld, mánudaginn 14. október kl. 20:00, fer fram áhugaverður fyrirlestur fyrir björgunarsveitarfólk í Gróubúð Grandagarði 1 í Reykjavík. Er fyrirlesturinn í tengslum við ráðstefnuna Slysavarnir 2019. Þar fjallar Stephanie Thomas um verkefni björgunarsveitar hennar í Bandaríkjunum og fleiri aðila þar sem sett var stefnan á núllsýn slysa í fjall- og hálendi svæðisins. Í kynningu…Lesa meira

true

Samstarf um framkvæmdir við Kirkjufellsfoss

Eins og kunnugt er hafa staðið yfir framkvæmdir við nýjan áningarstað við Kirkjufellsfoss í Grundarfirði á þessu ári, bílastæðin þar voru malbikuð í lok ágúst. Stöðu málsins og vegtengingu við nýja áningarstaðinn kynnti Björg Ágústsdóttir á Facebook síðu Grundarfjarðar í dag, fyrir hönd bæjarfélagsins, Vegagerðarinnar og landeigenda. Þar kemur fram að Kirkjufellslandið er í einkaeigu,…Lesa meira

true

Einn látinn eftir umferðarslys á Snæfellnesi

Farþegi sem var í bifreiðinni sem valt í gær skammt frá Gröf í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi hefur veirð úrskurðaður látinn. Fleiri eru mikið slasaðir. Lögreglan á Vesturlandi greindi frá þessu á Facebook í dag. Slysið varð með þeim hætti að fimm manna fjölskylda var á akstri í litlum fólksbíl um klukkan 13 í gær. Bíllinn…Lesa meira

true

ÍA og fleiri íþróttahreyfingar fá nú aðild að UMFÍ

Íþróttabandalag Akraness, ásamt Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Íþróttabandalagi Akureyrar, hafa nú fengið fulla aðild að Ungmennafélagi Íslands, UMFÍ. Þetta var samþykkt nær samhljóða á sambandsþingi UMFÍ sem fram fór á Laugarbakka í Miðfirði um helgina. Með aðild þessara félaga verða flest stóru íþróttafélögin á höfuðborgarsvæðinu, sem heyra undir ÍBR hluti af UMFÍ, ásamt ÍA á Akranesi,…Lesa meira