
Lionsklúbbur Grundarfjarðar kom færandi hendi á dögunum á Leikskólann Sólvelli og gaf nýja fjórburakerru fyrir yngstu börnin á leikskólanum. Nú eru stærri árgangar að koma inn í leikskólann á næstunni og því mikil þörf fyrir þessa viðbót. Anna Rafnsdóttir tók við gjöfinni frá Guðmundi Smára Guðmundssyni formanni Lionsklúbbs Grundarfjarðar.Lesa meira








