Fréttir

true

Fjárbíll í upprunalega kókbílslitnum

Góð flutningstæki gegna í dag veigamiklu hlutverki í sauðfjárbúskap. Það þarf að keyra féð á fjall og aftur heim úr réttum. Þessi glæsilegi Bensbíll á sér langa sögu. Var allmörg fyrstu árin einn af svokölluðum Kókbílum Vífilfells og ók um landið með fjölmarga plastkassa með 24 kókflöskum í hverjum. Hann heldur enn sama númeri og…Lesa meira

true

Ráðherra lýsir sig vanhæfa til ráðningar skólameistara

Á ríkisstjórnarfundi í dag var tekin fyrir beiðni Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að sú síðarnefnda feli öðrum að skipa í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands, á grundvelli auglýsingar þar um. Kjarninn greindi í dag frá málinu, en fjölmiðillinn kallaði eftir svari ráðuneytisins um ástæður þessarar óvenjulegu beiðni. Í frétt Kjarnans kemur fram…Lesa meira

true

Sjóða þarf neysluvatnið á Reykhólum

E.coli gerlar hafa fundist í neysluvatni á Reykhólum, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu sveitarfélagsins. Í fréttinni eru íbúar minntir á hvað skuli gera þegar slíkir sjúkdómsvaldandi gerlar finnist í neysluvatni en þá er mikilvægt að sjóða allt vatn sem nota á við matargerð eða drykkjar. Við suðu verða gerlarnir óvirkir og…Lesa meira

true

Skellur í síðasta leiknum

Skallagrímsmenn fengu skell í lokaleik 3. deildar karla í knattspyrnu þegar þeir töpuðu 5-0 gegn Reyni S. á útivelli síðastliðinn laugardag. Elfar Máni Bragason kom Suðurnesjaliðinu yfir á 16. mínútu og Gauti Þorvarðarson bætti öðru marki við á 24. mínútu. Magnús Magnússon skoraði þriðja mark Reynis á 36. mínútu og heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik.…Lesa meira

true

Frístundamiðstöð fær nafn

Bæjarráð Akraness hafði nafngift frístundamiðstöðvarinnar við Garðavöll til umræðu á fundi sínum nýverið. Ákveðið hefur verið að henni skuli gefið formlegt nafn, en hingað til hefur aðeins verið talað um Frístundamiðstöðina við Garðavöll. Bæjarstjóra var falið að setja saman hugmyndir í tengslum við formlega nafngift miðstöðvarinnar.Lesa meira

true

Breskur leikmaður og þrjár ungar í Skallagrím

Breska körfuknattleikskonan Charlotte Thomas-Rowe mun leika með Skallagrími í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Charlotte er 24 ára að aldri og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Skólaliði Grande Prairie Regional Collage í Alberta fylki í Kanada árið 2016 og hefur síðan þá leikið með félagsliðum bæði á Ítalíu og í Danmörku. Síðasta keppnistímabil lék…Lesa meira

true

Fálka komið til bjargar

Síðastliðin fimmtudag fór Rebecca C.K. Ostenfeld í björgunarferð í Dölum eftir að hafa fengið tilkynningu um fálka sem virtist þurfa aðhlynningar. Fálkinn dvaldi fyrst um sinn hjá Rebeccu á Hólum þar sem hún rekur húsdýragarðinn Hólar Farm en Rebecca var í stöðugu sambandi við Náttúrufræðistofnun vegna ummönnunar fuglsins. Á sunnudag var fálkinn fluttur í Húsdýragarðinn…Lesa meira

true

Ejub kveður Víking Ó.

Knattspyrnuþjálfarinn Ejub Purisevic er hættur sem þjálfari Víkings Ó. eftir að hafa starfað hjá félaginu og þjálfað meistaraflokk karla nær samfellt í 17 ár. „Knattspyrnudeild Víkings Ó. og Ejub Purisevic hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að ljúka 17 ára farsælu samstarfi sínu,“ segir í tilkynningu frá Víkingi Ó. Ejub kom fyrst til Víkings árið 2003…Lesa meira

true

Kaupfélag Borgfirðinga opnar nýjan veitingastað í dag

Kaupfélag Borgfirðinga opnar klukkan 11 í dag nýjan veitingastað og dagvöruverslun við Digranesgötu í Borgarnesi. Hefur staðurinn fengið nafnð Food Station. Þær Guðrún Sigurjónsdóttir formaður stjórnar KB og Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri munu klippa á borða og opna staðinn formlega. Í boði verður kaffi og kaka í tilefni dagsins og þá verður hægt að kaupa…Lesa meira

true

Landlæknir birtir ábendingar vegna rafrettunotkunar

Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi hér á landi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Viðkomandi er nú á batavegi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá landlækni þar sem birtar eru ábendingar til almennings, skólastjórnenda og lækna vegna gruns…Lesa meira