
Síðastliðinn föstudag afhenti Sigurður Garðarsson hjá Hrafnhóli ehf. Reykhólahreppi formlega nýtt raðhús við Hólatröð. Tryggvi Harðarson sveitarstjóri tók við húsinu fyrir hönd sveitarfélagsins. Aðeins fjóra mánuði tók að reisa og ganga frá húsinu en í því eru þrjár íbúðir, tvær 86 fermetrar að stærð og ein 95 fm. Nýir leigjendur tóku svo síðar sama dag…Lesa meira








