
Eins og kunnugt er var togskipið Bergey VE 544 selt Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði í febrúar á þessu ári og verður skipið afhent nýjum eiganda á næstu dögum. Mun það fá nafnið Runólfur SH. Bergey var smíðuð í Póllandi 2007 fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, og hefur útgerð skipsins ávallt gengið mjög vel.…Lesa meira








