Fréttir

true

Skriða féll á Skarðsstrandarveg

Aurskriða lokar nú veginum undir Melahlíð á Skarðsströnd, utarlega á ströndinni milli Ballarár og Klofnings. Að sögn Trausta Bjarnasonar, bónda á Á, er búið að vera mikið vatnsveður á Skarðsströnd og árnar þar kolmórauðar að lit við alla bakka. Trausti var á ferðinni í dag og kvaðst einnig hafa séð spýju úr hlíðinni fyrir ofan…Lesa meira

true

Buðu til stórafmælis og giftu sig óvænt

Hjónin Kristín Sveinbjörnsdóttir og Friðjón Guðmundsson á Hallsstöðum í Flekkudal í Dalabyggð eiga bæði stórafmæli á árinu. Kristín verður fimmtug í október og Friðjón varð sextugur í mars. Þá eiga tvö barnananna þeirra einnig stórafmæli á þessu ári, Einar verður tvítugur í lok september og Signý verður þrítug í október. Fjölskyldan ákvað fyrr í sumar…Lesa meira

true

Vegir ófærir vegna vatnavaxta

Vegna rigninga eru vatnavextir víða í dag, ekki síst á Vesturlandi og Vestfjörðum. Svo miklir eru vatnavextirnir sums staðar að flæðir upp á vegi. Meðal annars er Svínadalsvegur í sundur við Súluá og Langavatnsvegur er ófær sökum vatnavaxta. „Búast má við fleiri skemmdum og er fólk beðið að fara með mikilli gát,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Rannveig og Unnur verða varaseðlabankastjórar

Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra. Ný lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn þeirra skal leiða málefni er varða peningastefnuna, annar málefni sem varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni fjármálaeftirlitss. Bráðabirgðaákvæði nýju laganna gera ráð fyrir að embætti…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í klifri um helgina

Klifurnefnd ÍSÍ, í samstarfi við Klifurfélag ÍA og Smiðjuloftið, halda Íslandsmeistarmót í línuklifri fyrir alla aldursflokka nú um helgina. Mótið verður haldið á Smiðjuloftinu á Smiðjuvöllum 17. Dagskráin hefst 13.00 á laugardaginn með keppni í yngstu flokkum (12-13 ára) og stendur fram eftir degi þar til fullorðinsflokkar hafa lokið sér af. Rúmlega 50 klifrarar hafa…Lesa meira

true

Keypti fjórtán íbúða fjölbýli á Akranesi

Fjárfestirinn Matthías Imsland keypti nýlega 14 íbúða fjölbýlishús við Asparskóga 4 á Akranesi af leigufélaginu Heimavöllum hf. í gegnum einkahlutafélag sitt, MPI ehf. Fréttablaðið greindi frá. Kaupverðið liggur ekki fyrir en kaupin voru fjármögnuð með lánum frá Íbúðalánasjóði sem einungis eru ætluð óhagnaðardrifnum leigufélögum, en ákvæði þess efnis er í stofnskrá fyrirtækisins MPI ehf. Lán…Lesa meira

true

Mikil væta næsta sólarhringinn

Mikil rigning er um allt vestanvert landið og áframhaldandi rigning er í kortunum um Vesturland allt þangað til í fyrramálið. Hefur Veðurstofa Íslands gefið út gula viðvörun vegna þessa. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil rigning eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum.…Lesa meira

true

Sótti silfur á Norðurlandamót

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir vann til silfurverðlauna á Norðurlandamóti unglinga í kraftlyftingum sem fram fór í Videbæk í Danmörku um helgina. Alexandrea Rán keppti í klassískri bekkpressu í -57 kg flokki. Hún jafnaði Íslandsmet sitt í fyrstu tilraun þegar hún lyfti 77,5 kg. Hún átti tvær ágætar tilraunir til viðbótar með 82,5 kg en báðar…Lesa meira

true

Ókeypis festingar á ruslatunnur

Snæfellsbær hefur tekið áskorun Íslenska sjávarklasans og Bláa hersins um að hindra fok úr heimilissorptunnum, fyrst íslenskra sveitarfélaga. Snæfellsbær mun, í samstarfi við Gámaþjónustuna, bjóða öllum íbúum sveitarfélagsins upp á festingar á ruslatunnur, til að halda þeim lokuðum og koma í veg fyrir að rusl fjúki úr þeim. Íbúar geta nálgast festingarnar, sér að endurgjaldslausu,…Lesa meira

true

Eftir er að endurnýja rúman þriðjung asbestlagnarinnar

Þessa dagana er á vegum Veitna verið að ljúka við endurnýjun 7,8 kílómetra stofnæðar hitaveitunnar frá Kjalardal að miðlunartönkum á Akranesi. Nýja lögnin er í 400 mm stálröri, einangruð og með plastkápu yst. Lögnin var tengd síðastliðinn miðvikudag. Það var Þróttur hf. sem var verktaki í þessum hluta endurnýjun aðveituæðarinnar. Að sögn Helga Helgasonar verkefnisstjóra…Lesa meira