
“Umhverfisvaktin við Hvalfjörð hefur ítrekað vakið athygli sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar á hagabeit bæði kynbótahrossa og útigangshrossa á þynningarsvæði fyrir flúor og brennistein við Grundartanga (í svokölluðu Fellsaxlarlandi). Í sumar hafa verið þar allmargar kynbótahryssur með folöld, en þau eru sérlega viðkvæm fyrir áhrifum skaðlegum efna í fóðri. Sama er að segja um fóstrin sem hryssurnar bera,”…Lesa meira








