Fréttir

true

Hyrnudrengirnir mörgum í fersku minni

Ferðaþjónusta hér á landi vex nú hraðar en nokkur atvinnugrein fyrr og síðar. Fjölgun ferðamanna mælist í tugum prósenta á ári. Því fer fjarri að innviðirnir séu í stakk búnir til að taka á móti þessum fjölda og ýmsa agnúa má finna sem kenna má við vaxtarverki. Þá þarf fjölgun starfsfólks að fylgja með í…Lesa meira

true

Neistinn og Kraftur fengu rúmar sjö milljónir í styrk

Hinn árlegi styrkur Hrossaræktar ehf. til góðgerðarmála var afhentur formlega á landsmóti hestamanna á Hólum sem lauk á sunnudaginn. Söfnunin hófst að venju á Stóðhestaveislunni í apríl þegar miðasala í árlegt stóðhestahappdrætti fór af stað. Þar barst að auki góður liðsstyrkur frá velgjörðarsjóðnum Aurora sem lagði til rausnarlegt framlag í minningu Einars Öders Magnússonar hestamanns.…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Skotthúfan í Stykkishólmi tókst mjög vel

Um síðustu helgi var þjóðbúningahátíðin Skotthúfan haldin í Stykkishólmi í þrettánda skipti. Upphaflega var fólk hvatt til að mæta í þjóðbúningi í Norska húsið – Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla og þiggja þar kaffi og pönnukökur. Var þátttaka ávalt mjög góð svo tekin var sú ákvörðun fyrir tveimur árum að stækka hátíðina og nú nær hún…Lesa meira

true

Skráningum á Íslandsmót lýkur á miðnætti í kvöld

Ákveðið hefur verið að hafa opið fyrir skráningar á Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum, sem fram fer í Borgarnesi um miðjan þennan mánuð, til miðnættis í kvöld, 6. júlí. “Hér stefnir allt í gott mót – skráningar eru að nálgast 300 sem er nokkuð í takt við væntingar,“ segir í tilkynningu frá undirbúningsnefnd. Hesthúspantanir þarf…Lesa meira

true

Myndasyrpa frá Írskum dögum

Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram á Akranesi dagana 30. júní – 3. júlí síðastliðna. Mikið líf og fjör ríkti í bænum meðan á hátíðinni stóð. Dagskráin var fjölbreytt svo allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. „Hátíðin gekk bara ákaflega vel fyrir sig líkt og undanfarin ár. Veðrið hefði kannski mátt vera ögn betra en…Lesa meira

true

Umboðsmaður Alþingis setur ofan í við Borgarbyggð

Bréf umboðsmanns Alþingis til Borgarbyggðar vegna afgreiðslu á erindum Þorsteins Mána Árnasonar var lagt fram á fundi byggðarráðs fimmtudaginn 30. júní síðastliðinn. Forsaga málsins er sú að Þorsteinn Máni óskaði eftir svörum og gögnum frá Borgarbyggð eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi 24. september 2015 úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins um byggingarleyfi ferðaþjónustufyrirtækis við Egilsgötu.…Lesa meira

true

Annir við umferðargæslu og pústra á bæjarhátíð

Mikil umferð hefur verið um umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi að undanförnu enda ferðamannatíminn í hámarki og sumarveðrið gott flesta daga. Umferðin hefur að mestu gengið vel fyrir sig, að sögn Theódórs Þórðarsonar hjá LVL. Alls urðu níu umferðaróhöpp í vikunni sem leið, flest minniháttar. Öll voru óhöppin án teljandi meiðsla á fólki enda allir í…Lesa meira

true

Sandara- og Rifsaragleði framundan

Sandara- og Rifsaragleði verður haldin um helgina í Snæfellsbæ. Samkvæmt fjórðu drögum að dagskrá, á vef Snæfellsbæjar, byrjar gleðin fimmtudaginn 7. júlí en þá hefst Meistaramót golfklúbbsins Jökuls og verður spilað fimmtudag til laugardags. Vestfjarðarvíkingurinn verður í Tröð og Ari Eldjárn verður með uppistand um kvöldið í Frystiklefanum. Á föstudeginum verður meðal annars minningabekkur um…Lesa meira

true

Gáfu Jaðri kaffistell og tilheyrandi búnað

Síðastliðinn föstudag færði Kvenfélag Ólafsvíkur Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri að gjöf kaffistell fyrir 60 manns ásamt tíu kökufötum og tíu rjómakönnum. Elfa Eydal Ármannsdóttir formaður kvenfélagsins afhenti gjöfina ásamt stjórn og varastjórn félagsins. Inga Jóhanna Kristinsdóttir forstöðukona heimilisins veitti gjöfinni viðtöku. Sagði hún við það tækifæri að það væri ómetanlegt fyrir Jaðar að eiga svona…Lesa meira

true

Fyrsta hraðahindrunin komin upp á Reykhólum

Sveitarstjórn Reykhólahrepps afgreiddi á fundi sínum 23. júní síðastliðinn erindi Bjarkar Stefánsdóttur og Herdísar Ernu Matthíasdóttur, íbúa á Reykhólum, um umferðaröryggi gangandi vegfarenda í Reykhólahreppi. Samþykkti sveitarstjórn samhljóða að festa kaup á tveimur umferðareyjum til að mynda eina hraðahindrun á Hellisbraut á Reykhólum, en sá vegur heyrir undir sveitarfélagið. Þá var sveitarstjóra enn fremur falið…Lesa meira