Fréttir

true

Heim í Búðardal um helgina

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður haldin um næstu helgi, dagana 8. – 10. júlí. „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem lögð er áhersla á að hafa nóg í boði fyrir alla fjölskylduna,“ segir Svana Hrönn Jóhannsdóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi í Dalabyggð í samtali við Skessuhorn. „Það verður allt frítt sem hátíðin býður uppá,…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá á Hvanneyrarhátíð á laugardaginn

Hvanneyrarhátíðin 2016 verður haldin laugardaginn 9. júlí frá klukkan 13 til 17. „Þennan dag taka heimamenn vel á móti gestum og gangandi með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna,“ segir í tilkynningu frá undirbúningshópi hátíðarinnar. „Upphaf Hvanneyrarhátíðar má rekja til Safnadagsins sem Landbúnaðarsafn Íslands tók þátt í. Þá var velunnurum sem og gömlum nemendum boðið að…Lesa meira

true

Grundarfjarðarbær hyggst leita réttar síns í hitaveitumálum

Árið 2005 gerði Grundarfjarðarbær samning við Orkuveitu Reykjavíkur þess efnis að OR myndi hitaveituvæða Grundarfjarðarbæ gegn því að fá að yfirtaka Vatnsveitu Grundarfjarðar. Grundarfjarðarbær efndi sinn hluta samningsins 1. janúar 2006 þegar kaup OR á Vatnsveitu Grundarfjarðar gengu í gegn. Hálft ellefta ár er því frá því að Grundarfjarðarbær efndi sinn hluta samningsins en enn…Lesa meira

true

Tveimur kennslustofum bætt við á lóð Grundaskóla

Fyrir síðustu helgi var komið fyrir tveimur nýjum kennslustofum við Grundaskóla á Akranesi. Voru húsin smíðuð af Trésmiðju Þráins Gíslasonar. „Báðar verða stofurnar nýttar sem kennslustofur fyrir sjöunda bekk. Fyrir voru tvær kennslustofur sem voru notaðar sem námsver og kennslustofa í náttúrufræði. Námsverið verður núna að kennslustofu fyrir sjöunda bekk,“ segir Hrönn Ríkharðsdóttir skólastjóri Grundaskóla…Lesa meira

true

Gera má ráð fyrir að breskum ferðamönnum muni fækka

Bretar voru 19% erlendra ferðamanna sem komu til landsins í fyrra og hefur þeim fjölgað mikið á undanförnum árum. Breskir ferðamenn eru duglegri að sækja Ísland heim að vetrarlagi en sumarlagi og eiga því þátt í að auka nýtingu fjármuna og stöðugleika í greininni með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á afkomu ferðaþjónustunnar. Á móti kemur að…Lesa meira

true

Höfrungavaða á Breiðafirði

Höfrungar svo hundruðum skipti voru í vöðu á Breiðafirði snemma í morgun þegar Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns var á leið í róður. “Þeir skipta hundruðum og voru allt í kringum bátinn á fleygiferð,“ sagði Alfons. „Þetta gekk svona í um hálftíma og þeir hafa örugglega verið í æti en stefndu í norðurátt. Hér hefur bæði orðið…Lesa meira

true

Fyrri sláttur víða vel á veg kominn

Tíðarfar það sem af er sumri hefur verið hagfellt bændum. Vorið var milt og hlýindi í júní settu góðan vöxt í allan gróður. Bændur víða um Vesturland eru nú langt komnir með fyrri slátt og sumir búnir. Hey eru því góð og uppskera einnig. Margir þeirra búast við að slá tún tvisvar eða jafnvel þrisvar,…Lesa meira

true

Kvennalið Víkings vann Skínanda

Í síðustu viku lék Víkingur Ólafsvík við Skínanda í fyrstu deild kvenna A – riðli. Leiknum lauk með 1 – 0 sigri Víkings og markaskorarinn Samira Suleman skoraði eina mark leiksins. Víkingur er nú í þriðja sæti riðilsins með 15 stig, stigi á eftir ÍR sem er í fyrsta sæti. Næsti leikur Víkings er í…Lesa meira

true

Hæstu fasteignagjöldin á landinu eru í Borgarnesi

Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sambærilegri fasteign á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu eins og undanfarin ár. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er ríflega 161 fermetri að grunnfleti og á um 800 fermetra lóð. Gjöldin eru nú hæst í Borgarnesi, eða 351 þúsund krónur á slíka eign. Næsthæst eru…Lesa meira

true

Fyrirmyndar umgjörð og góð frammistaða á Landsmóti hestamanna

Landsmót hestamanna var haldið í vægast sagt mögnuðu umhverfi Hóla í Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí og gekk allt vel að sögn bæði gesta og mótshaldara. Um átta þúsund manns mættu á svæðið til að horfa á knapa leika listir sínar með hestum sínum og var samhljómur meðal mótsgesta um að fyrirkomulagið á…Lesa meira