Fréttir

true

Lenging hafnargarðs auglýst í útboði í næstu viku

Í lok næstu viku verður auglýst útboð í Grundarfirði þar sem boðið verður út stálþil, fylling og grjótvörn vegna lengingar Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn. Um er að ræða 130 metra lengingu hafnargarðsins og gert ráð fyrir tíu metra dýpi á stórstraumsfjöru. Reka þarf niður 190 metra stálþil og er stálið sem þarf til verksins 660 tonn…Lesa meira

true

OPUS lögmenn hafa opnað skrifstofu í Borgarnesi

OPUS lögmenn hafa nú opnað nýja skrifstofu að Borgarbraut 61 í Borgarnesi. Stofan hefur verið með skrifstofu í Borgarnesi síðan í ágúst 2017 og hefur Flosi H. Sigurðsson boðið upp á alla almenna lögfræðiþjónustu á svæðinu. Flosi er einn af fjórum eigendum OPUS lögmanna. Hann hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2010 og fyrir Landsrétti árið…Lesa meira

true

Botninn sleginn í stærstu listsýningu ársins

Síðastliðinn sunnudag bauð Svæðisgarðurinn Snæfellsnes og Akademía skynjunarinnar til lokahófs í Breiðabliki. Tilefnið var að gera upp hina gríðarstóru listsýningu Nr.3 Umhverfing sem verið hefur opin frá 22. júní í sumar á fjölmörgum sýningarstöðum víðsvegar um Snæfellsnes. Þar sýndi 71 listamaður fjölbreytt verk á sýningarstöðum sem valdir voru með tilliti til staða sem taldir voru…Lesa meira

true

Aflaverðmæti strandveiðibáta losaði þrjá milljarða króna

Strandveiðum sumarsins lauk síðastliðinn fimmtudag. Í tilkynningu frá Landssambandi smábátaútgerða kemur fram að sett var aflamet á veiðunum í ár, en aflinn fór í rúm 10 þúsund tonn. Af heildaraflanum voru 9.162 tonn af þorski, 829 tonn ufsi og 73 tonn af karfa. Alls fóru strandveiðibátar í um 16 þúsund róðra til að ná þessum…Lesa meira

true

Kanadískt fyrirtæki valið til uppbyggingar þangverksmiðju í Stykkishólmi

Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við kanadíska fyrirtækið Acardian Seaplants Ltd. um uppbyggingu rannsókna,- vinnslu- og afurðamiðstöðvar þangs í Stykkishólmi. Er sú niðurstaða í samræmi við niðurstöðu ráðgjafarnefndar sem fjallaði um málið. Acadian Seaplants Limited hefur 38 ára reynslu af sjálfbærri þangtekju og þörungavinnslu í Kanada.…Lesa meira

true

Annar flokkur ÍA búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn

Strákarnir í 2. flokki karla hjá ÍA eru þegar búnir að verja Íslandsmeistaratitil í fótbolta þrátt fyrir að tveir leikir séu eftir af mótinu. Það varð ljóst eftir jafnteflisleik á mánudaginn við Fylki í Árbæ; 2-2. Þetta er jafnframt í tíunda skipti sem félagið sigrar í 2. flokki karla. Í lokaleiknum gerði Sigurður Hrannar Þorsteinsson…Lesa meira

true

Í útreiðatúr með Ingimar Sveinssyni

Síðastliðinn föstudag fór hópur fólks í reiðtúr, sem í sjálfu sér er ekki í frásögu færandi, nema þá fyrir þær sakir að farið var í heimsókn til Ingimars Sveinssonar hestamanns og fyrrum kennara sem lengi starfaði og bjó á Hvanneyri, en býr nú í Mosfellsbæ. Ingimar verður 92 ára í febrúar á næsta ári en…Lesa meira

true

Rúmgóð bílastæði tekin í notkun á Malarrifi

Á vegum Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls hefur í sumar verið unnið við stækkun og endurbætur bílastæða við Gestastofuna á Malarrifi. Verkinu er nú lokið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og búið að mála línur fyrir bílastæði. Verkefni þetta hlaut meðal annars styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umferð á fjölfarna ferðamannastaði og náttúrperslur á Snæfellsnesi hefur aukist…Lesa meira

true

Fyrstu réttir á Vesturlandi verða um helgina

Bændur og búalið undirbýr nú fyrstu smalamennskur haustsins en fé verður rekið til fyrstu rétta á laugardaginn. Meðal annars verður þann dag réttað í Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Ljárskógarétt í Dölum og Tungurétt á Fellsströnd. Á sunnudaginn verður réttað beggja vegna Skarðsheiðar og Hafnarfjalls, en þar verður smalað á laugardaginn og réttað á sunnudag í Hornsrétt,…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði lítillega á síðustu mánuðum

Þjóðskrá hefur birt nýjar upplýsingar um íbúafjölda eftir sveitarfélögum 1. september síðastliðinn. Íbúar á Vesturlandi eru nú 16.602, fjölgaði um 55 frá 1. desember síðastliðnum eða um 0,3%. Á tímabilinu fjölgaði íbúum í Helgafellssveit um þrjá, sem jafngildir 4,8% fjölgun. Þá fjölgaði um 3,4% í Skorradalshreppi (2 íbúar), 1,5% á Akranesi (110 íbúar) og um…Lesa meira