Fréttir

true

Rúmgóð bílastæði tekin í notkun á Malarrifi

Á vegum Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls hefur í sumar verið unnið við stækkun og endurbætur bílastæða við Gestastofuna á Malarrifi. Verkinu er nú lokið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og búið að mála línur fyrir bílastæði. Verkefni þetta hlaut meðal annars styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umferð á fjölfarna ferðamannastaði og náttúrperslur á Snæfellsnesi hefur aukist…Lesa meira

true

Fyrstu réttir á Vesturlandi verða um helgina

Bændur og búalið undirbýr nú fyrstu smalamennskur haustsins en fé verður rekið til fyrstu rétta á laugardaginn. Meðal annars verður þann dag réttað í Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Ljárskógarétt í Dölum og Tungurétt á Fellsströnd. Á sunnudaginn verður réttað beggja vegna Skarðsheiðar og Hafnarfjalls, en þar verður smalað á laugardaginn og réttað á sunnudag í Hornsrétt,…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði lítillega á síðustu mánuðum

Þjóðskrá hefur birt nýjar upplýsingar um íbúafjölda eftir sveitarfélögum 1. september síðastliðinn. Íbúar á Vesturlandi eru nú 16.602, fjölgaði um 55 frá 1. desember síðastliðnum eða um 0,3%. Á tímabilinu fjölgaði íbúum í Helgafellssveit um þrjá, sem jafngildir 4,8% fjölgun. Þá fjölgaði um 3,4% í Skorradalshreppi (2 íbúar), 1,5% á Akranesi (110 íbúar) og um…Lesa meira

true

Tækifæri dreifðra byggða rædd á málstofu um fjórðu iðnbyltingunni

Á morgun, fimmtudaginn 5. september klukkan 9, hefst málstofa um tækifæri dreifðra byggða í fjórðu iðnbyltingunni. Þetta verður engin venjuleg málstofa því hún er haldin samtímis með sömu dagskrá á sex stöðum á landinu og send út á netinu í leiðinni. Staðirnir sem um ræðir eru Borgarnes, Ísafjörður, Sauðárkrókur, Akureyri, Reyðarfjörður og Selfoss. Málstofan er…Lesa meira

true

Vilja styrkja sveitarfélög til sameiningar

Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verður veitt heimild til að leggja árlega til hliðar fjármuni til að mæta kostnaði vegna fjárhagslegs stuðnings við sameiningu sveitarfélaga, en eins og fram hefur komið í frétt Skessuhorns er í nýrri þingsályktunartillögu lagt til að lágmarksfjöldi íbúa í sveitarfélagi verði 250 við næstu sveitarstjórnarkosningar árið 2022 og 1000 íbúa lágmark í kosningunum…Lesa meira

true

Upplýsingagáttin Work in Iceland

Work in Iceland er nýr upplýsingavefur á ensku sem hefur það að markmiði að kynna Ísland sem ákjósanlegan stað til búsetu og vinnu, en ekki síst til að laða útlendinga til Íslands í sérfræði- og hátæknistörf. Á vefnum er meðal annars að finna upplýsingar um ferlið við að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi, tryggingar og…Lesa meira

true

Fékk blómvönd frá bæjarstjórninni

Í tilefni þess að sunnudaginn 1. september voru rétt 70 ár frá því Jón Hjartarson rakari hóf störf við iðn sína á Akranesi, ákvað bæjarstjórn Akraneskaupstaðar að koma honum á óvart síðastliðinn föstudag. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri ásamt bæjarfulltrúunum Einari Brandssyni og Elsu Láru Arnardóttur komu á rakarastofuna og færðu honum blómvönd og óskuðu til…Lesa meira

true

Kirkjufellsplanið malbikað

Mánudaginn 26. ágúst voru nýju bílastæðin á áningarstaðnum við Kirkjufellsfoss í Grundarfirði malbikuð. Svæðið er tæplega þrjú þúsund fermetrar að flatarmáli og fer megnið af því undir bílastæði samkvæmt hönnun áfangastaðarins. Áætlað er að ljúka ýmsum frágangi á svæðinu á næstunni. Í skoðun er hvort aðkomuvegi inn á svæðið verði hliðrað eitthvað við endanlegan frágang…Lesa meira

true

Tekur samfélagsmiðlapásur

Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir ræddi við blaðamann Skessuhorns í liðinni viku um mikilvægi þess að taka sér samfélagsmiðlapásur. Hún tók fyrstu pásuna fyrir rúmum tveimur árum og hefur samviskusamlega tekið vikupása frá helstu samfélagsmiðlum á fjögurra til fimm vikna fresti. Sjá fróðlegt viðtal við Jóhönnu í Skessuhorni sem kom út í dag.Lesa meira

true

Dósaþjófar gómaðir

Óprúttnir aðilar voru á ferð um umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið og stálu miklu magni af dósum og gaskútum. Viðkomandi voru stoppaðir í Borgarfirði þegar lögreglumaður á frívakt sá til bíls sem passaði við lýsingu frá því sást til þeirra á Akranesi. Voru þeir handteknir og telst málið upplýst, að sögn lögreglu.Lesa meira