
Óprúttnir aðilar voru á ferð um umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið og stálu miklu magni af dósum og gaskútum. Viðkomandi voru stoppaðir í Borgarfirði þegar lögreglumaður á frívakt sá til bíls sem passaði við lýsingu frá því sást til þeirra á Akranesi. Voru þeir handteknir og telst málið upplýst, að sögn lögreglu.Lesa meira








