Fréttir

true

Skotið á kött við Laugar – eigandinn kallar eftir upplýsingum

Guðlaug H. Kristjánsdóttir varð fyrir óskemmtilegri lífsreynslu á dögunum þegar skotið var á köttinn hennar. Hún hafði leitað að kettinum sínum í tvo og hálfan sólarhring í nágrenni Lauga í Sælingsdal, en þar hafði Guðlaug sumardvöl á meðan hún starfaði á hótelinu. „Ég fann hann út í kjarri, örskammt vestur af hótelinu. Hann gat illa…Lesa meira

true

Inn vildi boltinn ekki

Víkingur Ó. og Fram gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í 19. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Framvelli á föstudagskvöld. Leikurinn fór fremur rólega af stað en þegar leið á fyrri hálfleikinn voru það Ólafsvíkingar sem sköpuðu sér hættulegri færi. Guðmundur Magnússon átti gott skot að marki á 35. mínútu úr…Lesa meira

true

Þverá að komast í 850 laxa veiði

„Við vorum í tvo daga í Þverá í Borgarfirði og fengum 25 laxa,“ sagði Stefán Sigurðsson þegar tíðindamaður Skessuhorns heyrði í honum hljóðið á veiðislóðum. Þá var Stefán að vísu kominn í Grímsá. Veiðin hefur aðeins tekið kipp eftir að fór að rigna undir lok ágúst en fiskurinn nýtti sér aukið vatn og hefur verið…Lesa meira

true

Töpuðu gegn erkifjendunum

Skagamenn máttu sætta sig við 2-0 tap gegn KR þegar liðin mættust í 19. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík í gær. KR-ingar stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik, héldu boltanum vel og ógnuðu marki ÍA án þess þó að skapa sér nein alvöru marktækifæri. Skagamenn lágu til baka og freistuðu…Lesa meira

true

Framkvæmdir hefjast við Hús íslenskunnar

Framkvæmdir við byggingu Húss íslenskunnar við Arngrímsgötu í Reykjavík eru hafnar en fyrir helgi var skrifað undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytis og Framkvæmdasýslu ríkisins við verktakafyrirtækið ÍSTAK um byggingu hússins. Hús íslenskunnar mun hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þar verða sérhönnuð rými svo sem fyrir…Lesa meira

true

Ræddu brettagarð við bæjarstjórann

Hópur ungra pilta á Akranesi fór á fund Sævars Freys Þráinssonar, bæjarstjóra Akraness, á dögunum. Vildu þeir ræða við hann um uppbyggingu hjólabrettagarðs í bænum. Piltarnir eru á aldrinum 10 til 12 ára og stunda brettaíþróttaina af kappi ásamt fleirum. Þykir þeim hins vegar að aðstöðu vanti til æfinga á hjólabrettum og tóku því máið…Lesa meira

true

Taka bókhald Höfða að sér

Gert hefur verið samkomulag milli Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða og Akraneskaupstaðar um rekstur bókhalds Höfða. Á fundi bæjarráðs í liðinni viku var samþykkt að fjármálasvið kaupstaðarins annist færslu bókhalds heimilisins til reynslu í eitt ár. Markmiðið með verkefninu er að lækka samanlagðan kostnað samstæðu Akraneskaupstaðar en sá einstaklingur sem hafði verkefnið með höndum hjá Höfði…Lesa meira

true

Fellibylurinn Dorian í beinni

Veðurforritið Windy.com er býsna gagnlegt, ekki síst þegar djúpar lægðir ógna mannlífi. Fellibylurinn Dorian nálgast nú Bahamaeyjar og Flóridaskagann á suðurströnd Bandaríkjanna. Um er að ræða fellibyl af fimmta og mesta styrkleika og því óttast menn hið versta; að hann skilji eftir sig mikla eyðileggingu. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Bahamaeyjum þar sem fellibylurinn…Lesa meira

true

Enduðu keppni með veltu

Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallýi; Rallý Reykjavík, hófst á fimmtudag og lauk í gær. Ekið var víða í þessari löngu keppni, meðal annars um Snæfellsnes, Mýrar og Borgarfjörð, en ræst og endað í Reykjavík. Keppnin er sem fyrr haldin af Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur. Þetta var jafnfram stærsta keppni Íslandsmótsins í sumar, en eknir voru rúmlega þúsund…Lesa meira

true

Fékk blómvönd frá bæjarstjórninni

Í tilefni þess að sunnudaginn 1. september verða rétt 70 ár frá því Jón Hjartarson rakari á Akranesi hóf störf við iðn sína, ákvað bæjarstjórn Akraneskaupstaðar að koma honum á óvart í dag. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri ásamt bæjarfulltrúunum Einari Brandssyni og Elsu Láru Arnardóttur komu á rakarastofuna og færðu honum blómvönd og óskuðu til…Lesa meira