Fréttir

true

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins með súpufund á morgun

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda opinn fund á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 13. ágúst kl. 12:00, í Frístundarmiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. „Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, dómsmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og þingmennirnir Haraldur Benediktsson, Bryndís Haraldsdóttir og Vilhjálmur Árnason ræða stjórnmálaviðhorfið og…Lesa meira

true

Skráning hafin í Hreppslaugarhlaupið

Hið árlega Hreppslaugarhlaup verður fimmtudaginn 15. ágúst. Hlaupið hefst kl. 18:00 við Hreppslaug í Skorradal. Að hlaupi loknu er boðið í sund í hina gömlu og margrómuðu Hreppslaug. Nánari upplýsingar og skráning er á hlaup.is Vegalengdir í hlaupinu verða 14,2 km, 7 km og 3 km með tímatöku. Drykkjarstöð verður í lengra hlaupinu. Verðlaun verða…Lesa meira

true

Héraðið var forsýnt í Árbliki og á Hvammstanga í gær

Héraðið, ný íslensk kvikmynd eftir leikstjórann Grím Hákonarson, verður frumsýnd í bíóhúsum landsins á miðvikudaginn. Eins og kunnugt er var myndin að stórum hluta tekin upp á Erpsstöðum í Dölum, en auk þess á Hvammstanga og Blönduósi. Héraðið fjallar um samskipti Ingu, miðaldra kúabónda, við kaupfélagið og kerfið. Hún reynir að fá aðra bændur í…Lesa meira

true

Fjórði jafnteflisleikur Víkings í röð

Víkingur Ólafsvík gerði enn eitt jafnteflið þegar liðið tók á móti Leiknir R. á Ólafsvíkurvelli í 16. umferð fyrstu deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn. Heimamenn byrjuðu mun sterkari og sóttu hart að gestunum frá Breiðholti á upphafsmínútunum. Það voru hins vegar Leiknismenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins. Á 27. mínútu átti Árni Elvar Árnason…Lesa meira

true

Þriðji tapleikur ÍA í röð

ÍA tapaði fyrir Breiðabliki í 16. umferð Pepsi Max deildar karla þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær. Er þetta þriðja tap Skagamanna í röð sem færast nær neðri hluta deildarinnar eftir fantagóða byrjun á tímabilinu. Gestirnir komu heimamönnum í opna skjöldu strax í byrjun með því að skora tvö mörk á fyrst sjö mínútum…Lesa meira

true

Fleiri buðu í lengingu Norðurgarðs

Á síðasta degi júlímánaðar voru hjá Vegagerðinni opnuð tilboð í lengingu Norðurgarðs Ólafsvíkurhafnar. Hafnarstjórn Snæfellsbæjar hafði endurauglýst útboð þar sem einungis barst eitt tilboð, 80% yfir kostnaðaráætlun, þegar það var auglýst í vor. Að þessu sinni reyndist áhugi verktaka mun meiri og sjö tilboð bárust. Reyndust þau öll yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem hljóðar upp á…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 4,4% á öðrum ársfjórðungi

Á öðrum ársfjórðungi 2019 reyndist án vinnu hér á landi vera 9.400 sem jafngildir 4,4% atvinnuleysi. Á sama tíma voru um 6.200 störf laus á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar, eða um 2,7% starfa. Atvinnulausir voru því um einn og hálfur um hvert laust starf samanborið við tveir á móti einu starfi á fyrsta ársfjórðungi…Lesa meira

true

María ráðin í nýtt starf verkefnastjóra kynningarmála

María Neves hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og menningarmála hjá Borgarbyggð. Alls bárust 14 frambærilegar umsóknir um starfið, að því greint er frá á vef sveitarfélagsins. „Eftir úrvinnslu umsókna var ákveðið að ráða Maríu Neves í starfið. María lauk BA prófi í Miðlun og almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst árið 2018…Lesa meira

true

Bændur fá nú 429 krónur að meðaltali fyrir kíló af lambakjöti

Á vef Landssambands sauðfjárbænda var síðastliðinn föstudag birtur verðlisti fimm af sjö sláturleyfishafa fyrir komandi sauðfjárslátrun. Þar kemur fram að vegin meðalhækkun á dilkakjöti til bænda er um 7% frá því í fyrra. Reiknað landsmeðalverð verður 429 krónur í stað 401 krónu haustið 2018. Á meðfylgjandi grafi LS má sjá reiknuð meðalverð hvers sláturleyfishafa og…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri á sunnanverðu Snæfellsnesi

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs allt frá Faxaflóa, um Strandir ásamt norðan- og austanverðu landinu auk miðháldendisins. Hér um vestanvert landið er spáð norðan 10-18 m/s, hvassast verður á sunnanverðu Snæfellsnesi með staðbundnum vinhviðum 25-30 m/s. Vegarendur með aftanívagna og á húsbílum eru þar hvattir sérstaklega til að fara varlega eða fresta…Lesa meira