Fréttir

true

Farfuglar standa fyrir Vatnsviku

Farfuglar á Íslandi standa fyrir Vatnsviku dagana 5. – 10. ágúst í þeim tilgangi að vekja athygli gesta á mengun af völdum plasts og hvetja þá til að nota brúsa í stað þess að kaupa vatn í einnota plastflöskum. Verkefni Inspired By Iceland veitti farfuglum innblástur til vatnsvikunnar. Einnig er tilgangurinn að benda ferðamanninum á góða…Lesa meira

true

Umhverfisganga hefst á sunnudaginn í Stykkishólmi

Umhverfisganga verður í Stykkishólmi dagana 11. til 14. ágúst. Þar mun Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri ásamt formönnum umhverfis- og náttúrverndarnefndar og skipulags- og byggingarnefndar Stykkishólmsbæjar, ásamt öðrum fulltrúum bæjarins, ganga með íbúum um hverfi Stykkishólmsbæjar og huga að nánasta umhverfi. „Tilgangur umhverfisgöngu um hverfi Stykkishólmsbæjar er að efna til samtals um nánasta umhverfi, hvað megi…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær hafnar kröfu VLFS um eingreiðslu til félagsmanna

Stykkishólmsbær hefur hafnað beiðni Verkalýðsfélags Snæfellinga um eingreiðslu til handa félagsmönnum VLFS. Á fundi bæjaráðs 31. júlí síðastliðinn var tekið fyrir erindi frá félaginu, en það hafði verið sent öllum sveitarfélögum á starfssvæði félagsins. Snýst erindið um þá stöðu sem nú ríkir í samningamálum félagsmanna sem vinna hjá sveitarfélögum á félagssvæðinu. Í bréfi stéttarfélagsins kemur…Lesa meira

true

Girðing reist vegna ruslfoks í Fíflholtum á Mýrum

Ákveðið hefur verið að reisa girðingu til þess að sporna við ruslfoki frá Sorpurðun Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum. Eins og fyrr hefur komið fram í Skessuhorni þá segir framkvæmdastjóri Sorpurðunarinnar, Hrefna Bryndís Jónsdóttir, að erfitt sé að koma í veg fyrir að rusl fjúki af ruslahaugunum. Þó hafi verið brugðið á það ráð að…Lesa meira

true

Engin alvarleg slys um Verslunarmannahelgina

Engin alvarleg umferðarslys áttu sér stað í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi um Verslunarmannahelgina en margir áttu leið um landshlutann þessa annasömu helgi. Þó voru tvær bílveltur sem áttu sér stað þar sem fólk slasaðist í öðru óhappinu. Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir að bíll fór út af veginum milli Reykholtsdals og Hálsasveitar í…Lesa meira

true

Tugþúsundir fara á Ed Sheeran tónleika um næstu helgi

Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran heldur stórtónleika í Laugardalnum um næstkomandi helgi og vinnur starfsfólk nú hörðum höndum að því að setja sviðið upp og gera tónleikasvæðið tilbúið fyrir þeim tugþúsundum gesta sem eiga miða á tónleikana. Aðaltónleikarnir fara fram laugardaginn 10. ágúst og hefst dagskráin klukkan 12 á hádegi þegar aðdáendasvæðið í Laugardalshöll verður opnað,…Lesa meira

true

Farfuglar efna til Vatnsviku

Farfuglar efna til Vatnsviku dagana 5.-10 ágúst í þeim tilgangi að vekja athygli gesta á mengun af völdum plasts og hvetja þá til að nota brúsa í stað þess að kaupa vatn í einnota plastflöskum. Einnig benda samtökin ferðamanninum á góða kranavatnið hér á landi og gildi þess að vera ábyrgir ferðamenn en 65% þeirra…Lesa meira

true

Dytta að umhverfinu

Ungmenni í vinnuskólanum í Borgarnesi hafa verið dugleg að dytta að og fegra bæinn sinn í sumar. Eru ýmis verk sem þarf að vinna og sinna yfir sumartímann og eru mörg verkefnanna eitthvað sem gleður bæjarbúa og gesti sem eiga leið um bæinn. Í síðustu viku lappaði vinnuhópurinn upp á bekk sem er staðsettur fyrir…Lesa meira

true

Grátlegt tap í Kaplakrikanum

Skagamenn þurftu að sætta sig við tap gegn FH í Kaplakrikanum í gærkvöldi þegar liðin mættust í 15. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. ÍA byrjaði leikinn betur og voru mun ákveðnari fyrsta hálftímann. Þeir gulklæddu fengu algjört dauðafæri strax á 11. mínútu en markvörður FH náði að verja stórkostlega. Þeir gulklæddu héldu uppi…Lesa meira

true

Tekist á um stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar

Djúpstæður ágreiningur er kominn upp innan sveitarstjórnar Borgarbyggðar og stjórnar Menntaskóla Borgarfjarðar um málefni skólans. Síðdegis í gær var boðað til aukafundar í sveitarstjórn sökum málsins að kröfu Framsóknarflokksins sem skipar minnihlutann í sveitarstjórn. Framsóknarmenn lögðu fram bókun þar sem íhlutun sveitarstjórnar í málefni skólans er fordæmd. Þeirri ályktun svarar meirihluti sveitarstjórnar með ítarlegri bókun,…Lesa meira