Fréttir

true

Skagamenn töpuðu í hörkuleik

ÍA og Valur mættust í hörkuleik í 14. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Akranesi og lauk leiknum með sigri Valsmanna, 1-2. Gestirnir voru öflugri í upphafi leiks og komust yfir á 16. mínútu eftir mistök Skagamanna. Arnór Snær Guðmundsson steig ofan á boltann og Kristinn Freyr Sigurðsson komst…Lesa meira

true

Sóttu slasaðan mann í Ólafsvík

Klukkan 11:33 á föstudag var haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands og óskað eftir þyrlu til Ólafsvíkur vegna vélhjólaslyss. Áhöfnin á TF-GRO var einmitt á leið á æfingu á þeim tíma og brást skjótt við. Tekið var á loft frá Reykjavík tíu mínútum eftir að kallið barst og þyrlan lenti með manninn við Landspítalann í…Lesa meira

true

Gekk fram á stolna gaskúta

Töluvert margir gestir tjaldsvæðanna í Ólafsvík og Hellissandi höfðu samband við Lögregluna á Vesturlandi fyrir þarsíðustu helgi og greindu frá því að gaskútum hefði verið stolið. Kútarnir komu hins vegar í leitirnar. Íbúi á Hellissandi sem ætlaði að fara að grilla heima hjá sér gekk fram á hvorki fleiri né færri en 15 gaskúta sem…Lesa meira

true

Grundfirðingar á maraþonskátamóti

Föstudaginn 12. júlí síðastliðinn lögðu nokkrir galvaskir skátar úr Grundarfirði af stað í óvenju langt ferðalag. Ferðinni var heitið til London en þar var skátamótið Gillwell 24 á dagskrá frá klukkan níu á laugardagsmorgninum til klukkan níu á sunnudagsmorgninum. Þetta er sólarhringsmót þar sem stanslaus keyrsla er allan sólarhringinn. Það var því lítið sofið á…Lesa meira

true

Kælingaraðferðir við höfnina

Það er einmuna veðurblíða búin að vera á Vesturlandi að undanförnu og margir sem njóta þess. Krakkar í Grundarfirði nýttu veðurblíðuna nýverið til að svamla aðeins í höfninni. Hvort sem það var að synda á milli bryggjanna eða bara að láta sig vaða í sjóinn, þá var ljóst á öllu fasi að þeir skemmtu sér…Lesa meira

true

Mikið fjör á Náttúrubarnahátíð um liðna helgi

Náttúrubarnahátíð á Ströndum var haldin helgina 19.-21. júlí á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir fjölbreyttum námskeiðum yfir sumartímann sem miða að því að fræða börn á öllum aldri um ólíkar hliðar náttúrunnar. Hátíðin er í anda skólans og einkennist af útivist og náttúruskoðun. Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur er skipuleggjandi Náttúrubarnahátíðarinnar og er…Lesa meira

true

Búið að opna Ískofann í Stykkishólmi

Nýir eigendur teknir við rekstrinum   Ískofinn í Stykkishólmi var opnaður á nýjan leik laugardaginn 13. júlí síðastliðinn. Svava Pétursdóttir keypti rekstur vagnsins ásamt Elvari Má Eggertssyni, eiginmanni sínum. Hún segir kaupin hafa borið brátt að. „Þetta var skyndihugdetta,“ segir Svava létt í bragði í samtali við Skessuhorn á mánudaginn. „Kofinn er búinn að vera…Lesa meira

true

Fegra bæinn um eina hellu í einu

Við Borgarbrautina í Borgarnesi var ný gangstétt hægt og rólega að taka á sig mynd í liðinni viku. Vakti athygli vegfarenda að einungis ungar stelpur voru að störfum. Þessar öflugu stelpur eru starfsmenn Sigur-garða sf. á Laufskálum í Borgarfirði sem er rótgróið skrúðgarðyrkjufyrirtæki sem býður ýmsa þjónustu við lóðir, innkeyrslur og athafnasvæði í samfélaginu. Verk…Lesa meira

true

Tap í Kaplakrikanum

Skagakonur fóru fýluferð í Hafnarfjörðinn í gær þegar þær töpuðu með einu marki gegn þremur á móti toppliði FH í tíundu umferð 1. deildar kvenna. Mikið rú og stú hefur verið í kringum ÍA liðið síðustu vikur. Fyrst þurfti Bandaríski markvörðurinn, Tori Ornela, frá að hverfa og í kjölfarið óskaði þjálfarateymið, Helena Ólafsdóttir og Aníta…Lesa meira

true

Súrt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í 14. umferð 3. deildar karla í gærkvöldi. Gestirnir mættu ákveðnari til leiks og sóttu hart að heimamönnum á upphafsmínútunum. Stefán Ingi Sigurðarson kom Augnabliki yfir á 19. mínútu eftir góða sókn. Skallagrímsmenn sýndu þó engin merki þess að…Lesa meira