
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í liðinni viku var samþykkt beiðni sóknarnefndar Borgarkirkju á Mýrum um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun kirkjugarðsins á Borg. Byggðarráð samþykkti að veita leyfið og auk þess að einnar milljónar króna fjárheimild í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, vegna framkvæmda í kirkjugörðum, renni til verkefnisins. Akstur jarðvegs í garðstæðið er hluti af því framlagi.Lesa meira








