Fréttir

true

Myndir Þorgeirs Þorgeirssonar kynntar á Icedocs.is

Kvikmyndahátíðin Iceland Documentary Film Festival hófst í gær á Akranesi og stendur  til 21. júlí. Hátíðin er alþjóðleg heimildamyndahátíð og á dagskrá eru myndir frá öllum heimshornum. Í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands hefur hátíðin sett saman sérstakt brautryðjandaprógram, þar sem meiningin er að kynna kvikmyndaáhugafólki verk íslenskra kvikmyndagerðarmanna fyrri kynslóða. Þetta fyrsta árið verða verk…Lesa meira

true

Ísbúð Ömmu Gógó opnuð í Borgarnesi í ágúst

B59 Hótel í Borgarnesi stefnir að því að opna ísbúð í húsnæði sínu í næsta mánuði. Verður það í rýminu þar sem gjafavöruverslunin Fok var til skamms tíma, áður en hún flutti starfsemi sína yfir í Hyrnutorg í byrjun sumars. Nýja ísbúðin fær nafnið Ísbúð Ömmu Gógó og segir Hendrik Björn Hermannsson hótelstjóri nafnið koma…Lesa meira

true

Nafni HB Granda verður breytt í Brim

Stjórn HB Granda hefur samþykkt að leggja það til, fyrir hluthafafund í félaginu um miðjan næsta mánuð, að breyta nafni og vörumerki félagsins í Brim og Brim Seafood. „Nýtt vörumerki og nafn þjóna vel tilgangi félagsins sem er að markaðssetja og selja afurðir, sem félagið veiðir og vinnur, á verðmætum alþjóðamörkuðum. Nafni félagsins var síðast…Lesa meira

true

Íslenska karlalandsliðið U20 komið í úrslit

Undir 20 ára karlalið Íslands í körfubolta tekur nú þátt í Evrópumóti í Matosinhos í Portúgal. Fyrir daginn í dag hafði liðið tapað tveimur leikjum og unnið einn. Í dag mætti liðið svo Ungverjalandi í lokaleik riðlakeppninnar. Á vefnum karfan.is segir að íslenska liðið hafi sannarlega ætlað sér sigur því það hafi gjörsamlega valtaði yfir…Lesa meira

true

Þýskur veiðiþjófur gripinn í Krossá

Veiðiþjófur var gripinn í Krossá á Skarðsströnd síðastliðinn þriðjudag. Trausti Bjarnason, bóndi á Á og veiðivörður við Krossá, varð var við lítinn bláan bíl sem stöðvaði við ána um hálf tvö leytið og sá ungan mann með tösku stíga út. „Ég hélt að þarna væru á ferðinni leigutakarnir, sem ætluðu bara að ganga í veiðihúsið…Lesa meira

true

Gírolía lak í Akraneshöfn

Óhapp varð í Akraneshöfn á þriðjudaginn þegar gírolía lak úr togaranum Bjarna Ólafssyni AK og í höfnina. Að sögn Einars Guðmundssonar hafnarvarðar var lán í óláni að Páll Erlingsson var á ferð á bryggjunni um þetta leyti og varð lekans var. Hann fór um borð í Bjarna, tókst að stöðva lekann og lét vita af…Lesa meira

true

Hægt á umferð til að verja kríuna

Kríuungarnir eru komnir á stjá í Rifi. Af þeim sökum hafa verið settar niður keilur á báðar akreinir á götuna í efra Rifinu. Ætlunin er að hægja á umferðinni til að draga úr líkum á því að ekið verði á ungana. „Um tímabundna ráðstöfun er að ræða en hún gafst afar vel í fyrra. Eftir…Lesa meira

true

Öllum tilboðum hafnað í fimleikabúnað

Á síðasta fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar voru opnuð tilboð í búnað í fimleikahús sem nú er í byggingu við Vesturgötu á Akranesi. Fjögur tilboð bárust og var þeim öllum hafnað. Verslunin Altis átti þrjú tilboðanna og það lægsta hljóðaði upp á rúmlega 111 milljónir króna. Fimleikar.is áttu næstlægsta tilboðið, tæpar 115 milljónir. Önnur tilboð…Lesa meira

true

Féll af hestbaki

Slys varð á sunnudaginn skammt frá Helgavatni í Borgarfirði. Maður um sextugt féll af baki þegar hestur sem hann reið fældist. Kallað var eftir aðstoð björgunarsveitar sem mætti á vettvang og fór með manninn í veiðihús við Helgavatn. Þaðan var hann fluttur til aðhlynningar á Heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi. Virðist honum ekki hafa orðið stórlega…Lesa meira

true

Torfærukeppni í Akrafjalli á laugardaginn

Fjórða umferð Íslandsmótsins í torfæru, Bílanaustartorfæran, fer fram í gryfjunum við Fellsenda við Akrafjall laugardaginn 20. júlí næstkomandi. Það er Torfæruklúbbur Suðurlands sem annast framkvæmd keppninnar. Helga Katrín Stefánsdóttir, formaður klúbbsins, á von á harðri keppni og miklum tilþrifum: „Keppnin í sumar hefur verið hörð og þrír ökumenn hafa verið í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.…Lesa meira