Fréttir

true

Bændur geta vænst hærra verðs fyrir dilkakjöt í haust

Frá 2017 hafa sauðfjárbændur þurft að sætta sig við verulega raunlækkað afurðaverðs vegna sölutregðu og offramleiðslu. Nú er hvorugt til staðar. Sala lambakjöts hefur aukist á þessu ári á sama tíma og dregið hefur úr framleiðslu. Erlendir markaðir hafa opnast og landinn velur sem fyrr lambakjöt á grillið. Ýmsir kjöthlutar, eins og hryggir, eru því…Lesa meira

true

Nýr vegur að orlofshúsabyggðinni í Svignaskarði

Nú í vikulokin voru starfsmenn verktakafyrirtækisins Þróttar á Akranesi að leggja lokahönd á nýjan 1,3 kílómetra afleggjara sem liggur frá þjóðvegi 1 að orlofshúsabyggðinni í Svignaskarði í Borgarfirði. Gamli vegurinn var orðinn æði bágborinn og oft ófær að vetrum og torveldaði það nýtingu húsanna. Nýi vegurinn er breiður og lagður bundnu slitlagi eins og kröfur…Lesa meira

true

Vegagerðin kærir ákvörðun Skipulagsstofnunar

Vegagerðin hefur ákveðið að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Að mati Vegagerðarinnar er ákvörðunin ekki í samræmi við fyrri fordæmi og túlkun laga um mat á umhverfisáhrifum hvað snertir matsskyldu framkvæmda þegar verið er að breikka veg úr tveggja akreina vegi í 2+1 veg. Nauðsynlegt…Lesa meira

true

Veiðin í Norðurá tíundi hluti þess sem var í fyrra

Flestar laxveiðár á Vesturlandi eru í sumar langt undir meðalveiði, sumar vart svipur hjá sjón. Veiðin er snöggtum skárri í ánum á Norðurlandi og Rangánum á Suðurlandi. Þurrkar með tilheyrandi vatnsleysi, auk lélegra árganga í laxabúskapnum, eru stærsta ástæðan fyrir lítilli veiði á Vesturlandi. Veiðitölur sem Landssamband veiðifélaga gefur út vikulega vitna um erfiðar aðstæður…Lesa meira

true

Fundu sig ekki suður með sjó

Ólafsvíkingar áttu ekki góðan dag þegar þeir töpuðu úti gegn Njarðvíkingum í elleftu umferð 1. deildar karla í knattsyrnu á í gær, 3-0. Fyrir leikinn höfðu heimamenn tapað sjö leikjum í röð en gengi Víkings Ó. hefur verið upp og ofan undanfarnar vikur. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og voru sterkari í fyrri hálfleik. Ólafsvíkingar…Lesa meira

true

Störf í boði hjá sveitarfélaginu Borgarbyggð

Um þessar mundir auglýsir Borgarbyggð eftir starfsfólki í nokkur störf á vegum sveitarfélagsins. Í Skessuhorni vikunnar er auglýst nýtt starf verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og menningarmála hjá sveitarfélaginu. Um fullt stöðugildi er að ræða, en ráðið er til eins árs í fyrstu en með möguleika á framlengingu. Starfið heyrir undir nýja atvinnu-, markaðs- og menningarnefnd. Auk…Lesa meira

true

Fjögurra marka tap á Selfossi

Káramenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Selfyssinga, þegar liðin mættust í elleftu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Selfossi. Káramenn byrjuðu leikinn ágætlega, léku prýðilega lengst framan af fyrri hálfleik og fengu fín færi. Þeim tókst hins vegar ekki að koma boltanum í netið. Það voru Selfyssingar…Lesa meira

true

Borgarbyggð styður kæru Akurnesinga

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði á fundi sínum í gærmorgun um úrskurð Skipulagsstofnunar þess efnis að breikkun vegar um Kjalarnes skuli fara í mat á umhverfisáhrifum. Eftirfarandi var bókað: „Byggðaráð Borgarbyggðar lýsir yfir vonbrigðum sínum með þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar um að vegaframkvæmdir á Kjalarnesi skulu háðar mati á umhverfisáhrifum. Ekki er um nýtt vegstæði að ræða, heldur…Lesa meira

true

Ætla að skerpa á undirbúningi fyrir næstu Lopapeysu

Bæjarráð Akranes fór yfir framkvæmd Írskra daga á fundi sínum í gær. Ísólfur Haraldsson, forsvarsmaður Vina hallarinnar sem heldur Lopapeysuballið á laugardagskvöldi hátíðarinnar, mætti á fundinn. „Bæjarráð vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í að skipuleggja og taka þátt í að gera upplifun íbúa og gesta á Írskum dögum á Akranesi eins vel heppnaða…Lesa meira

true

Atvinnutækifæri hjá G.Run í Grundarfirði

Þrenns konar störf eru í boði hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði. Samkvæmt auglýsingu í Skessuhorni vikunnar vantar starfsmann hjá fyrirtækinu í starf verk- og gæðastjóra og netagerðamann. Þá er einnig auglýst eftir fólki til starfa í nýrri hátæknifiskvinnslu fyrirtækisins í Grundarfirði. Sjá nánar í auglýsingunni í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira