Fréttir

true

Tveir Vestlendingar hlutu Menntaverðlaun Háskóla Íslands

Tveir Vestlendingar tóku nýverið við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands. Bergdís Fanney Einarsdóttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Lára Karítas Jóhannesdóttir úr Menntaskóla Borgarfjarðar voru meðal tuttugu stúdenta sem tóku við verðlaununum við brautskráningar úr framhaldsskólum víða um landið. Menntaverðlaunum Háskóla Íslands var komið á laggirnar í fyrra og eru þau veitt þeim nemendum sem staðið…Lesa meira

true

„Við erum orðnir rótgrónir Borgfirðingar núna“

Fyrir skömmu lá leið blaðamanns Skessuhorns að bænum Gufuá í Borgarhreppi. Bæjarhúsin eru skammt frá þjóðveginum norðan við Borgarnes. Heima fyrir er kyrrðin þó einstök og ekki sést til næstu bæja. Á jörðinni stendur eitt lítið útihús og íbúðarhús þeirra Sigríðar Ævarsdóttur og Benedikts Líndal. Áin rennur þarna skammt frá, hestarnir standa slakir í sólinni…Lesa meira

true

Ístak átti lægsta boð í byggingu Þjóðgarðsmiðstöðvar

Hjá Ríkiskaupum voru í dag opnuð tilboð í byggingu nýrrar Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi. Þrjú tilboð bárust og var lægsta boð frá Ístaki sem bauð 622 milljónir króna í verkið. Eykt bauð 716 milljónir og Framkvæmdafélagið Arnarhvoll 738 milljónir. Tilboðin voru öll langt yfir kostnaðaráætlun við verkið sem hljóðaði upp á rúma 461 milljón króna. Framkvæmdasýsla…Lesa meira

true

„Mikil lyftistöng að fá þennan fjölda í bæinn“

Norðurálsmótið fór fram um síðustu helgi á Akranesi þar sem 1.500 iðkendur í 7. flokki drengja og þúsundir aðstandendur þeirra komu saman í bænum til að taka þátt og fylgjast með mótinu. Mótsgestir fengu sannkallaða rjómablíðu alla mótsdagana. Mótið var sett fyrir hádegi á föstudaginn og hófst með árlegri skrúðgöngu keppenda frá ráðhúsinu við Stillholt.…Lesa meira

true

Rigning gladdi laxveiðimenn – mjög góð byrjun í Grímsá

„Það er allavega spáð rigningu næstu daga. Við skulum sjá hvað hún gerir,” sagði veiðimaður sem tíðindamaður Skessuhorns heyrði í í Haukadalsá í Dölum. Hvort þessi úrkoma dugir til að glæða lífi í vatnslitlar árnar á eftir að koma í ljós. „Ég er að spá í að fara í Laxá í Dölum, byrja seinna í…Lesa meira

true

Reglugerð um kvóta á næsta fiskveiðiári

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún alfarið ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem kynnt var fyrr í sumar. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kom fram að staða þorskstofnsins er sterk og því verða aflaheimildir í þorski auknar um 3%, úr 264.437 tonnum í 272.411…Lesa meira

true

Andlát – Ásgeir Pétursson sýslumaður

Ásgeir Pétursson, fyrrverandi sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og bæjarfógeti í Kópavogi, er látinn á 98. aldursári. Ásgeir fæddist 21. mars 1922 í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Pétur Magnússon, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, alþingismaður og ráðherra, og Þórunn Ingibjörg Guðmundsdóttir. Þau áttu átta börn. Ásgeir lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1950 og lagði eftir það stund…Lesa meira

true

Bjarki keppir á Evrópumóti áhugamanna

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson hefur í dag leik á Evrópumóti áhugamanna, sem er eitt sterkasta mót ársins. Hann ásamt fyrrum skóla- og liðsfélaga sínum úr bandaríska háskólagolfinu, Gísla Sveinbergssyni, munu leika á Diamond Country vellinum í Austurríki. Flestir af bestu áhugakylfingum heims eru á meðal keppenda í mótinu. Leiknir verða fjórir hringir á mótinu sem hefst,…Lesa meira

true

Stýrivextir lækkaðir í 3,75%

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur og eru stýrivextir því orðnir 3,75%. Stutt er síðan peningastefnunefnd lækkaði síðast vexti, en 22. maí síðastliðinn voru stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentur. Stýrivextir hafa þannig lækkað um 0,75 prósentur frá undirritun kjarasamninga en meginmarkmið kjarasamninganna var að treysta lífskjör með hækkun launa, lækkun…Lesa meira

true

ÍA tapaði í toppbaráttuleik

Skagastelpur þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Þróttar R. þegar liðin mættust í sjöttu umferð fyrstu deildar kvenna í Laugardalnum í gærkvöldi. Munaði einungis einu stigi á liðunum fyrir viðureignina og mátti því búast við hörku leik. Það voru heimastúlkur sem byrjuðu mun betur og voru staðráðnar í að endurtaka ekki leikinn frá…Lesa meira