Fréttir

true

Snæfell vann í toppslagnum

Snæfell hafði betur gegn Hvíta riddaranum þegar liðin mættust í toppbaráttuleik í sjöundu umferð B-riðils í fjórðu deild karla í Stykkishólmi í gærkvöldi. Um var að ræða fjörugan leik en fyrir viðureignina voru bæði lið taplaus og með jafn mörg stig. Engin mörk komu í fyrri hálfleik þrátt fyrir ágætis færi. Það var ekki fyrr…Lesa meira

true

Bjarg íbúðafélag afhenti í morgun fyrstu íbúðirnar við Asparskóga

Fyrstu leigjendur Bjargs íbúðafélags fengu í morgun afhenta lyklana af íbúðum sínum við Asparskóga 12 og 14 á Akranesi. Allar íbúðirnar í húsunum tveimur verða afhentar í dag í þremur úthlutunum, en samtals eru 22 íbúðir í húsunum tveimur. Þriðja húsið kom til landsins fyrr í mánuðinum, búið er að reisa einingar þess og verður…Lesa meira

true

Líflegar skreytingar á Brákarhátíð

Brákarhátíð í Borgarnesi er hafin en nær hámarki á laugardaginn. Eins og komið hefur fram í Skessuhorni settu krakkar í vinnuskólanum upp skreytingar sem hafa beðið í geymslum frá síðasta ári. Þegar blaðamaður fór á rúntinn um bæinn í gær mátti sjá líflegar skreytingar víðsvegar um bæinn hver annarri frumlegri. Í dag klukkan 18 býður…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar í blíðskaparveðri um liðna helgi

Hvalfjarðardagar voru haldnir hátíðlegir um liðna helgi í blíðskaparveðri. Að sögn Ásu Líndal Hinriksdóttur, félagsmála- og frístundafulltrúa, var hátíðin mjög vel heppnuð og fjölmenni lagði leið sína á þá viðburði sem í boði voru. Dagskráin var fjölbreytt en mest áhersla var lögð á laugardaginn. Á föstudagskvöldinu var gestum boðið í heimsókn á Laxárbakka og var…Lesa meira

true

Alltaf spennandi tímar hjá Steinþóri

Veitingamaðurinn Steinþór Árnason hefur selt Lesbókina Café á Akranesi og afhendir reksturinn í lok næsta mánaðar. Þangað til verður reksturinn með óbreyttu sniði en auk þess að reka Lesbókina hefur hann tekið við rekstri á kaffihúsinu Skemmunni á Hvanneyri. Spurður hvernig það hafi komið til að hann ákvað að sækja um rekstur Skemmunnar hlær hann…Lesa meira

true

Árbók Akurnesinga að koma út

Meðal efnis í átjánda bindi Árbókar Akurnesinga eru tveir þættir sem tengjast Sementverksmiðjunni, fyrrum stærsta vinnustað á Akranesi. Garðar H. Guðjónsson rifjar upp útgáfusögu Sementspokans, sem Starfsmannafélag Sementsverksmiðjunnar gaf út, og birtar eru ljósmyndir Friðþjófs Helgasonar af yfirgefnum salarkynnum verksmiðjunnar. Í viðtali sem Anna Lára Steindal tók við Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið, Skagamann ársins 2016, segir…Lesa meira

true

Hús rifin til að rýma fyrir leikskóla

yrr í vikunni var hafist handa við að niðurrif hluta mannvirkja við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjársreykjum. Fyrrum skólastjóraíbúð og heimavist grunnskólans víkur en á lóðinni verður byggður nýr leikskóli fyrir Hnoðraból ásamt skrifstofuaðstöðu fyrir starfsfólk leik- og grunnskólans. Það er Borgarverk sem annast niðurrif en Eiríkur J Ingólfsson byggingameistari mun síðan byggja leikskólann sem á…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið á laugardaginn

Hið árlega Snæfellsjökulshlaup verður verður haldið á laugardaginn og er búist við góðri þátttöku venju samkvæmt. Þetta er í níunda skipti sem hjónin Fannar Baldursson og Rán Kristinsdóttir standa fyrir hlaupinu. Hlauparar verða ræstir klukkan 12 frá Arnarstapa, hlaupnir 22 kílómetrar yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Búist er við fyrstu keppendum í mark um…Lesa meira

true

Fjölmargir lögðu leið sína á Snæfellsjökul um sumarsólstöður

Föstudagskvöldið 21. júní síðastliðið voru fjölmargir sem fóru í kvöldgöngu enda sólin að setjast í seinna lagi á þessum lengsta degi ársins. Stór hópur fólks gekk á Snæfellsjökul enda fáir staðir betri til að njóta sólsetursins en uppi á toppi jökulsins. Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns þáði þó far með snjótroðara upp á topp en…Lesa meira

true

Tveir Vestlendingar hlutu Menntaverðlaun Háskóla Íslands

Tveir Vestlendingar tóku nýverið við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands. Bergdís Fanney Einarsdóttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Lára Karítas Jóhannesdóttir úr Menntaskóla Borgarfjarðar voru meðal tuttugu stúdenta sem tóku við verðlaununum við brautskráningar úr framhaldsskólum víða um landið. Menntaverðlaunum Háskóla Íslands var komið á laggirnar í fyrra og eru þau veitt þeim nemendum sem staðið…Lesa meira