
Ólafsvíkurvaka verður haldin fyrstu helgina í júlí og er undirbúningur í fullum gangi. Að þessu sinni eru það appelsínugula og græna hverfið sem standa að hátíðinni. Að sögn þeirra Ara Bjarnasonar úr appelsínugula hverfinu og Ríkarðs Kristjánssonar úr því græna gengur undirbúningur vel og hafa allir í hverfunum verið áhugasamir og margir komið að undirbúningnum.…Lesa meira








