Fréttir

true

Markvisst hraðaeftirlit lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi var við hraðaeftirlit með myndavélabíl embættisins í vikunni sem leið. Fimmtudagin 13. júní milli kl. 14:00 og 15:00 var fylgst með hámarkshraða á Ketilsflöt á Akranesi, til móts við leikskólann Akrasel, þar sem hámarkshráði er 30 km/klst. Alls var hraði 105 bíla mældur. Af þeim voru 60 bílar yfir leyfilegum hámarkshraða og…Lesa meira

true

Gestir ánægðir með nýja Lýsuhólslaug

Lýsuhólslaug var opnuð síðastliðinn fimmtudag eftir endurbyggingu. Frágangi er nú að mestu lokið en eftir er m.a. að ganga frá girðingunni og lóð. Nýja laugin er steypt ásamt heitum pottum og fljótlega verður settur upp kaldur pottur. Laugargestir hafa eftir opnun verið ánægðir með vel heppnaðar breytingar og ekki hefur veðrið skemmt upplifun þeirra.  Laugin…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – búið að opna Hvalfjarðargöng

Búið er að draga bíl út úr Hvalfjarðargöngunum sem lokaði þeim fyrr í kvöld. Umferð var beint um Hvalfjörð á meðan. Fyrri frétt: Samkvæmt tilkynningu á bloggsíðu Vegagerðarinnar er lokað fyrir umferð í Hvalfjarðargöngum. Þar er bilaður bíll sem gengur illa að ná út úr göngunum. Umferð er nú beint um Hvalfjörð og er meðal…Lesa meira

true

Blíða laus af skerinu

Um klukkan hálf eitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út þegar fjölveiðiskipið Blíða SH steytti á skeri hálfa aðra sjómílu frá Stykkishólmi, skammt frá Hvítbjarnarey. Björgunarbátur frá Stykkishólmi var kominn á vettvang skömmu síðar og þá kom björgunarskipið Björg frá Rifi einnig á vettvang, sem og eftirlits- og sjómælingaskipið Baldur. Aðgerðum á…Lesa meira

true

Veður er gott á strandstað

Eins og fyrr segir strandaði bátur skammt frá Stykkishólmi í hádeginu í dag. Landhelgisgæslan var að senda svohljóðandi tilkynningu: „Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning klukkan 12:36 um 24 metra langt fiskiskip sem hafði steytt á skeri á Breiðafirði um 1,3 sjómílur ANA af Stykkishólmi. Berserkir, Björgunarsveit Slysvarnafélagsins Landsbjargar ásamt björgunarskipinu Björg í Rifi voru kölluð út…Lesa meira

true

Skip strandað skammt frá Stykkishólmi

Um klukkan hálf eitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út vegna skips sem strandað hafði rétt utan við Stykkishólm. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu er skipið staðsett um 1,5 sjómílu frá bænum, nærri Hvítabjarnarey. Um er að ræða 22 tonna fjölveiðiskip. „Björgunarbátur frá Stykkishólmi var komin á vettvang stuttu síðar, staðan um borð…Lesa meira

true

Vera opnaði myndlistarsýningu

Vera Líndal Guðnadóttir opnaði myndlistarsýningu sem hún nefnir Óþekkt landslag, að Stillholti 16-18 á Akranesi síðastliðinn laugardag. Í dag og fram á föstudag verður sýningin opin frá klukkan 17 til 19, en um helgina frá kl. 14-17.Lesa meira

true

Baski er bæjarlistamaður Akraness

Myndlistarmaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, eða Baski eins og hann er jafnan kallaður, er bæjarlistamaður Akraness 2019. Tilkynnt var um valið við á hátíðardagskrá á Akratorgi á þjóðhátíðardaginn í gær, venju samkvæmt. Baski er fæddur á Akranesi 5. september 1966. Hann tók snemma upp pensilinn og var farinn að tjá sig með myndlist strax á barnaskólaárum…Lesa meira

true

Allir í golf á Hamri – leiðsögn og grill á laugardaginn

Laugardaginn 22. júní kl. 10.00-12.00 mun Golfklúbbur Borgarness verða með dagskrá á Hamarsvelli. Þá verða kennarar og aðstoðarfólk á staðnum og leiðbeina í slaghamri, á æfingasvæði og setja upp æfingar. Gullhamar, 8 holu stuttur völlur verður leikinn en dagskránni lýkur svo með pylsupartýi klukkan 12.Lesa meira

true

Stöngin út og stöngin inn

Víkingur Ó. tapaði gegn Keflavík með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Leikið var í Ólafsvík. Liðin mættu ákveðin inn á völlinn og nokkur harka var í leiknum í upphafi. Ólafsvíkingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik en tókst ekki að skapa…Lesa meira