Fréttir

true

Dúx MB á leið í lögfræði

Föstudaginn 31. maí síðastliðinn útskrifaðist Lára Karitas Jóhannesdóttir af félagsfræðabraut við Menntaskóla Borgarfjarðar með 9,44 í lokaeinkunn, sem var hæsta meðaleinkunn á stúdentsprófi. Lára Karitas segist ekki geta deilt neinu leyndarmáli um hvernig hægt sé að ná svo góðum árangri en segir að námið hafi alltaf legið þokkalega vel fyrir henni. „Mér þótti námið skemmtilegt…Lesa meira

true

Brautskráning við Landbúnaðarháskóla Íslands

Brautskráning kandídata og búfræðinga frá Landbúnaðarháskóla Íslands fór fram í blíðskaparveðri í Hjálmakletti í Borgarnesi síðastliðinn. Þar voru brautskráðir  51 kandídat og 25 búfræðingar. Snorri Baldursson, deildarforseti auðlinda- og umhverfisdeildar setti samkomuna. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor fór yfir árið og það sem framundan er hjá skólanum. Hún óskaði útskriftarhópnum heilla og gaf fráfarandi nemendum góð…Lesa meira

true

Fjöliðjan opnuð á nýjum stað eftir helgi

Stefnt er að því að starfsemi Fjöliðjunnar á Akranesi hefjist a fullum krafti á nýjan leik eftir helgi að Smiðjuvöllum 9. Trésmiðjan Akur er eigandi hússins og hafa tekist samningar milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækis um leigu húsnæðisins til ársloka 2020. „Í dag eru stjórnendur og starfsmenn Akurs, sem sýnt hafa verkefninu einstakan velvilja, að vinna…Lesa meira

true

Seiðum sleppt í Andakílsá

Föstudaginn 24. maí var 30 þúsund laxaseiðum komið fyrir í tveimur sleppitjörnum við Andakílsá. „Þetta er liður í endurreisn lífríkis árinnar í kjölfar atburðar sem varð sumarið 2017 vegna viðhalds og ástandsmats á stíflumannvirkjum Andakílsárvirkjunar,“ segir í tilkynningu á vef Orku náttúrunnar. Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni varð óhapp í Andakílsá í…Lesa meira

true

Mátuðu sætið í Lýsuhólslaug

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar fór í skoðunarferð um sundlaugasvæði Lýsulaugar á Lýsuhóli á fundi sínum í gær. Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni í síðsutu viku eru framkvæmdir þar á lokametrunum, en þær hafa staðið yfir í vetur. „Laugasvæðið er að verða hið glæsilegasta og verður laugin opnuð í síðasta lagi í byrju næstu viku,“…Lesa meira

true

Sóttu slasaðan göngumann

Laust eftir klukkan 13:00 í gær voru björgunarsveitarmenn á Snæfellsnesi kallaðir út til aðstoðar sjúkraflutningamönnum vegna manns sem slasaðist á göngu að Lóndröngum við Malarrif. Koma þurfti hinum slasaða um tveggja kílómetra leið að sjúkrabíl. Sexhjól var notað til að flytja hinn slasaða að sjúkrabílnum og honum síðan komið undir læknishendur. Útkallið stóð yfir þar…Lesa meira

true

Sterkari frá fyrstu mínútu

ÍA vann öruggan sigur á ÍR með þremur mörkum gegn engu þegar liðin mættust í fjórðu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík í gærkvöldi. Skagkonur voru mun sterkari meira og minna frá fyrstu mínútu leiksins en ÍR-liðið átti erfitt uppdráttar. Skagakonur skapaði sér nokkur ákjósanleg marktækifæri og komust yfir á 22.…Lesa meira

true

Ferðir um sprungna jökla eru hættuspil

Það er ekki sama hvar ekið og gengið er um jökla landsins. Þekking á hvar öruggt er að fara er á fárra færi, sérstaklega vegna þess að sprungur koma og fara. Mikil þekking hefur orðið til um sprungur í jöklum og hægt er að fá nokkuð nákvæm kort sem sýna hvar staðsetningar þeirra eru. Ávallt…Lesa meira

true

LSS segir ástand sjúkrabílaflotans óviðunandi

„Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur þungar áhyggjur af ástandi sjúkrabifreða, sem heilt yfir landið fer nú versnandi. Ástandið er alvarlegt og er það óásættanlegt með öllu að ekki sé enn búið að tryggja fjármögnun til endurnýjunar.“ Þannig hefst bréf sem LSS sendi Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra síðastliðinn miðvikudag. „Sjúkrabifreiðar eru mikilvæg flutningstæki og er þeim ætlað…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót eldsmiða var haldið á Akranesi

Íslandsmótið í eldsmíði var haldið á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi síðastliðinn sunnudag. Hefð er fyrir því að íslenskir eldmiðir komi saman langa helgi en þeir hófu dagskrána á örnámskeiði í eldsmíði á fimmtudaginn. Til úrslita á mótinu kepptu síðan sjö. Var verkefnið tvíþætt. Annars vegar áttu þátttakendur að smíða mataráhöld og hins vegr nytjahlut…Lesa meira