Fréttir

true

Fjölgar um einn í einangrun

Í dag, fimmtudaginn 8. október, eru 22 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi, skv. tölum sem lögregluembætti landshlutans birti nú í hádeginu. Er það fjölgun um einn frá því í gær. Tíu eru í einangrun á starfssvæði heilsugæslunnar í Stykkishólmi, átta á Akranesi, þrír í Grundarfirði og einn í Borgarnesi. Alls eru 43 í sóttkví…Lesa meira

true

Flutningabíll út af sunnan við Búðardal

Gámaflutningabíll fulllestaður af þaramjöli á leið til Reykjavíkur fór út af Vestfjarðavegi við bæinn Saura í Dölum um klukkan 11 í morgun.  Að sögn bílstjórans blindaðist hann af sólinni.  Ekki urðu slys á á fólki og bifreiðin er lítið skemmd, að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi.Lesa meira

true

Grunnskólakennarar sömdu

Skrifað var undir nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga á ellefta tímanum í gærkveldi. Undirritun fór fram í húsakynnum ríkissáttasemjara. Nýr kjarasamningur grunnskólakennara er í samræmi við lífskjarasamningana, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Kennarasambands Íslands. Gildir samningurinn til ársloka 2021. Næstu daga verður samningurinn kynntur fyrir félagsmönnum Félags grunnskólakennara…Lesa meira

true

Viðraði vel fyrir tökur í Grundarfirði

Veðrið síðustu daga hefur verið með ágætum og tökur á þáttunum Vitjunum í Grundarfirði hafa gengið bærilega. Í gær var verið að taka upp við rætur Kirkjufells í yndislegu haustveðri. Áætlað er að tökur standi yfir fram í byrjun nóvember mánaðar en góður gangur er í verkefninu þessa dagana.Lesa meira

true

Níutíu og fjögur innanlandssmit

Alls greindust 94 með kórónaveiruna innanlands í gær. Af þeim voru fjörtíu í sóttkví. Auk þess greindust átta manns við landamærin. Í dag liggja 23 á Landspítalanum með Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Alls hafa greinst 280 ný smit undanfarna þrjá daga, langflest á höfuðborgarsvæðinu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna nú rétt…Lesa meira

true

Fimm vilja stýra Auðarskóla

Fimm umsóknir bárust um starf skólastjóra Auðarskóla, en starfið var auglýst laust til umsóknar í september síðastliðnum. Þeir sem sóttu um eru: Ari J. Sigurðsson, Elsa Í. Arnórsdóttir, Haraldur Haraldsson, Herdís E. Gunnarsdóttir og Sigríður Aðalsteinsdóttir. Úrvinnsla umsókna er hafin, að því er fram kemur í fundargerð frá síðasta fundi byggðarráðs Dalabyggðar.Lesa meira

true

Norhern Wave frestað

Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Northern Wave, sem haldin hefur verið árlega á Snæfellsnesi í rúman áratug, hefur verið frestað vegna Covid-19. Ákvörðunin er tekin með heilsu og öryggi gesta, starfsfólks og samfélagsins í huga, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Hún mun því ekki fara fram dagana 23. til 25. október næstkomandi, eins…Lesa meira

true

Landbúnaðarnemar fordæma orð ráðherra

Stjórn Nemendafélags Landbúnaðarháskóla Íslands fordæmir orð Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hann hafði upp á þingi þriðjudaginn 6. október síðastliðinn. Þykir stjórninni að þar hafi ráðherra talað niður til bændastéttarinnar í heild, með því að segja að það væri lífsstíll að vera sauðfjárbóndi fremur en spurning um afkomu. „Það er skrýtið að okkur…Lesa meira

true

Körfunni og fótboltanum frestað

Öllu mótahaldi í Íslandsmótinu í knattspyrnu hefur verið frestað um eina viku, til miðvikudagsins 14. október. Þá verður staðan endurmetin. Markmið KSÍ er eftir sem áður að ljúka keppni samkvæmt mótaskrá, þrátt fyrir frestanir leikja. Þá hefur öllum leikjum Íslandsmótsins í körfuknattleik sömuleiðis verið slegið á frest, en til og með 19. október þegar mótanefnd…Lesa meira

true

Miðflokksmenn í Norðvesturkjördæmi lýsa vantrausti á ráðherra

„Stjórn Kjördæmafélags Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi lýsir yfir vantrausti á Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra,“ segir í yfirlýsingu félagsins sem send hefur verið til fjölmiðla. „Hann hefur ítrekað sýnt að hann veldur ekki því embætti, þar á meðal með því að gera lítið úr sauðfjárbændum og telur hann þá vera að stunda lífstíl með atvinnu sinni líkt…Lesa meira