
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu; í Reykjavík , Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogi. Í þessum sveitarfélögum tóku hertar aðgerðir gildi á miðnætti og gilda því frá og með deginum í dag. Áformað er, skv. minnisblaði sóttvarnalæknis, að þær gildi í tvær til þrjár vikur. Ráðstafanir…Lesa meira








