Fréttir

true

Hvetur stjórnvöld til að efla gjaldeyrisskapandi iðnað

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness hvetur stjórnmálamenn til að efla gjaldeyrisskapandi iðnað. Bendir hann á að það sé farsælasta og fljótvirkasta leiðin til að þjóðin vinni sig hratt og örugglega út úr fjárþrengingum vegna Covid-19 faraldursins. „Við einfaldlega vinnum okkur út úr tekjufallinu með því að efla og styðja við frekari gjaldeyrisskapandi atvinnugreinar,“ skrifar hann…Lesa meira

true

Innan við fjórðungur nýrra smita hjá fólki í sóttkví

Síðastliðinn sólarhring greindust 47 ný innanlandssmit af Covid-19 hér á landi. Einungis ellefu af þeim voru í sóttkví, sem er með því minna frá því faraldurinn tók að breiða úr sér. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það mikið áhyggjuefni hversu útbreidd veiran er í samfélaginu í ljósi þess hversu fáir sem nú eru að greinast höfðu…Lesa meira

true

Hertar reglur taka gildi á morgun til að sporna gegn útbreiðslu smita

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Ný reglugerð þess efnis tekur gildi á morgun, mánudaginn 5. október. Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum,…Lesa meira

true

Sumarlestri lokið í Snæfellsbæ

Grunnskóli Snæfellsbæjar, í samstarfi við Bókasafn Snæfellsbæjar, stóð fyrir sumarlestri í fjórða sinn nú í sumar. Markmiðið með sumarlestri er að hvetja börn til lesturs og að njóta góðra bóka ásamt því að viðhalda færni sína í lestri milli skólaára. Að þessu sinni var sumarlesturinn í formi lestrarpóstkorts fyrir 1. til 4. bekk og 5.…Lesa meira

true

Katrín boðar umræður um auðlindaákvæði í stjórnarskrá

Í stefnuræðu sinni við upphaf Alþingis síðastliðinn fimmtudag færði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í tal breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Sagði hún að Alþingi fengi í vetur tækifæri til að takast á við ákvæði í stjórnarskrá um að auðlindir, sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, verði þjóðareign. Sagði hún að um þetta hafi verið deilt allt frá því…Lesa meira

true

Sóttvarnalæknir íhugar hertari aðgerðir

Tvö ný kórónuveirusmit hafa greinst á Vesturlandi undanfarna tvo daga, bæði í Grundarfirði. Í dag eru 26 í landshlutanum í einangrun með Covid-19, skv. tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu, en voru 24 á miðvikudaginn. Engar tölur voru birtar í gær. Í dag eru 13 í einangrun í Stykkishólmi, níu á Akranesi,…Lesa meira

true

Aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku og þrífösunar

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár og fjármálaáætlun 2021-2025, koma fram áform ríkisstjórnarinnar um aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku, flýtingu á jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku og úrbóta á varaafli. „Þessi þrjú verkefni styðja öll við þá stefnu okkar að tryggja öllum landsmönnum jafnan aðgang að raforku. Síðasti vetur gerði öllum ljóst að…Lesa meira

true

Fjárbúskap í Bíldsey á Breiðafirði er nú hætt

Svo lengi sem menn muna hefur fé gengið í Bíldsey á Breiðafirði ýmist allt árið eða að hluta. Eyjan er í um tuttugu mínútna siglingafjarlægð norðaustan við Stykkishólm. Bíldsey er í eigu afkomenda Árna Helgasonar sem nýtt hafa hana til sumardvalar en gamla íbúðarhúsinu er haldið við. Eyjan var í ábúð til 1946 en eftir…Lesa meira

true

Bakverðir Landsbjargar orðnir fimm þúsund á árinu

Fimmþúsundasti Bakvörður Landsbjargar á þessu ári gekk á dögunum til liðs við stóran hóp fólks sem styður við starf félagsins með mánaðarlegum framlögum. Í rafrænu fréttabréfi Landsbjargar segir að viðkomandi sé 64 ára karlmaður sem búi í Kópavogi. Gerðist hann Bakvörður með 3.000 króna framlag á mánuði í kjölfar heimsóknar frá fulltrúa félagsins.Lesa meira

true

Framkvæmdaleyfi Teigsskógarleiðar stendur

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála staðfesti í gær framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Vestfjarðavegar eftir svokallaðri Þ-H leið, sem meðal annars liggur um Teigsskóg og þverar Þorskafjörð, Gufufjörð og Djúpafjörð. Að mati nefndarinnar færði sveitarstjórn Reykhólahrepps ásættanleg rök fyrir því að þeir samfélagslegu hagsmunir sem felist í auknu umferðaröryggi vegfarenda um sveitarfélagið til frambúðar, feli í sér brýna…Lesa meira