Fréttir

true

Landsmót hestamanna 2026 verður á Hólum

Stjórn Landssambands hestamannafélaga hefur ákveðið að Landsmót hestamanna 2026 verði haldið á Hólum í Hjaltadal. Þegar heimsfaraldurinn Covid19 skall á var mótið sem halda átti á Rangárbökkum í sumar fært til ársins 2022 og að sama skapi var mótið sem halda átti hjá Spretti í Kópavogi 2022 fært til 2024. Nú hefur stjórn LH ákveðið…Lesa meira

true

Smit greint í Grundarfirði og sjö að auki komnir í sóttkví

Búið er að greina einstakling í Grundarfirði með Covid-19 og eru sjö sem tengjast viðkomandi komnir í sóttkví. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri greinir frá þessu í tilkynningu. Frekari sýnatökur eru undirbúnar í dag á vegum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. „Við höfum verið lánsöm hingað til, með fjölda smita, en við skulum búa okkur undir að fleiri smit geti…Lesa meira

true

„Hef mikla trú á þessum hópi og þessari verksmiðju“

Álfheiður Ágústsdóttir tók við starfi forstjóra Elkem Ísland nú um miðjan mánuðinn. Hún var áður framkvæmdastjóri fjármála og innkaupa hjá fyrirtækinu en hefur starfað hjá Elkem frá 2006, fyrst í framleiðslunni og síðar á fjármálasviði. Hún sinnti ýmsum störfum hjá fyrirtækinu samhliða námi í reikningshaldi og endurskoðun en hefur verið í fullu starfi hjá Elkem…Lesa meira

true

Einstakt samband heimasætunnar og ærinnar Tótu

Sól Jónsdóttir heimasæta á bænum Bergi, rétt utan við Grundarfjörð, hefur alist upp stóran hluta ævi sinnar í nánu samneyti við kindina Tótu. Sól er fædd árið 2009 og fyrstu mánuði ævi sinnar svaf hún í barnavagni inni í fjárhúsunum á meðan foreldrarnir sinntu bústörfunum. „Stundum þegar hún vaknaði var hún að hjala við rollurnar…Lesa meira

true

Öll mörkin skoruð fyrsta korterið

Ólafsvíkingar máttu játa sig sigraða gegn Grindavík, 3-0, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó og leikurinn byrjaði með miklum látum. því öll mörk leiksins litu dagsins ljós fyrsta korterið. Strax á upphafsmínútunni barst boltinn á Odd Inga Bjarnason sem var ekkert að tvínóna við hlutina…Lesa meira

true

Fullir á golfbíl

Haft var samband við Neyðarlínu um klukkan tvö að nóttu síðastliðinn mánudag og óskað eftir aðstoð sjúkrabíls, vegna manns sem hafði fallið af bensínknúnum golfbíl skammt fyrir utan Borgarnes. Er hann talinn hafa fótbrotnað við fallið auk þess sem hann var með skurð á höfði. Var hann fluttur undir læknishendur. Þrír voru á golfbílnum og…Lesa meira

true

Ónefndur velgjörðarmaður gaf Ólafsvíkurkirkju píanó

Ólafsvíkurkirkju barst góð gjöf á dögunum. Var henni fært píanó af gerðinni Yamaha. Nýja hljóðfærið verður í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju og mun leysa af hólmi eldra píanó sem þjónað hefur sókninni og kirkjukór Ólafsvíkur vel og lengi. Kórinn æfir einu sinni í viku í safnaðarheimilinu. Var því vel við hæfi að píanóið væri afhent á kóræfingu…Lesa meira

true

Yrkja vildi eg jörð er ný bók eftir Bjarna Guðmundsson

Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri hefur sent frá sér bókina Yrkja vildi eg jörð. Í henni rekur Bjarni sögu jarðræktar á Íslandi, allt frá söguöld til lok síðustu aldar. „Titill bókarinnar kemur úr ljóðinu Söngur sáðmannsins eftir Mýramanninn og búnaðarfrömuðinn Bjarna Ásgeirsson: „Ef eg mætt yrkja, yrkja vildi eg jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænagjörð.…Lesa meira

true

Leik Snæfells og Keflavíkur frestað

Mótanefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að fresta leik Snæfells og Keflavíkur sem fyrirhugaður var suður með sjó næstkomandi laugardag, 3. október. Ástæðan er sú að leikmannahópi Keflavíkur hefur verið gert að sæta sóttkví fram yfir settan leikdag. Leiknum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími og ekki hefur verið tekin frekari ákvörðun um næstu leiki Keflavíkurliðsins…Lesa meira

true

Aðeins sjö skipakomur af 187

Í byrjun árs voru áætlaðar 187 skipakomur farþegaskipa til Faxaflóahafna með samtals 203.214 farþega innanborðs. Miðað við þær tölur stefndi í 8% fjölgun farþega frá fyrra ári en 2% færri skipakomur en í fyrra, þegar skipakomur voru 190 og heildarfjöldi farþega 188.630. En vegna Covid-19 faraldursins urðu skipakomur sumarsins hins vegar aðeins sjö talsins með…Lesa meira