Fréttir

true

„Að aðlagast nýrri menningu og siðum var mjög krefjandi“

Þegar Skagamaðurinn Lárus Beck Björgvinsson sótti um inngöngu í Leiklistarskólann árið 2011, og átti sér draum um leiklistarferil, kom honum ekki til hugar að þess í stað hæfist nýtt ævintýr í Mið-Austurlöndum sem átti eftir að breyta öllum hans framtíðaráformum. Lárus fékk snemma áhuga á leiklist en hann hafði tekið þátt í nokkrum verkefnum Leiklistarklúbbs…Lesa meira

true

Eitt nýtt smit en fækkar í sóttkví

Þeim sem þurfa að sæta einangrun vegna Covid-19 á Vesturlandi fjölgar um einn frá því í gær, að því er fram kemur í nýjum tölum sem lögreglan á Vesturlandi birti nú á fjórða tímanum. Í dag eru 24 í einangrun í landshlutanum; 13 á svæði heilsugæslunnar í Stykkishólmi, níu á Akranesi, einn í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Veiði nú að ljúka í flestum laxveiðiánum

Laxveiðinni er nú að ljúka í ánum á Vesturlandi. Við rennum hér lauslega yfir sumarið, skoðum lokatölur þar sem þær liggja fyrir. Laxveiðin í sumar var undir meðallagi víðast hvar í vestlensku ánum, þótt á því séu vissulega ánægjulegar undantekningar. Fyrirfram höfðu sérfræðingar spáð góðri laxveiði í sumar, en þær væntingar gengu þó ekki upp…Lesa meira

true

„Ég fer með þetta lið í úrvalsdeild“

Skallagrímur hefur leik í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld, 2. október, þegar liðið mætir Fjölni á útivelli. Ungt og efnilegt lið Borgnesinga spilaði prýðilega síðasta vetur. Ef til vill var reynslusleysi helsti galli liðsins, sem átti oft erfitt með að sækja sigur í leikjum sem voru jafnir fram á lokamínúturnar. Þegar keppni var…Lesa meira

true

Vann til verðlauna fyrir rannsókn á tannsýklun í börnum

Lára Hólm Heimisdóttir stundar nú framhaldsnám í barnatannlæknum við University of North Carolina (UNC) í Chapel Hill í Norður Karólínu í Bandaríkjnum. Lára „gæti ekki verið meiri Skagakona,“ eins og hún orðar það sjálf, en hún er dóttir Sigþóru Ævarsdóttur og Heimis Hallssonar sem bæði eru fædd og uppalin á Akranesi. Í UNC eru árlega…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna 2026 verður á Hólum

Stjórn Landssambands hestamannafélaga hefur ákveðið að Landsmót hestamanna 2026 verði haldið á Hólum í Hjaltadal. Þegar heimsfaraldurinn Covid19 skall á var mótið sem halda átti á Rangárbökkum í sumar fært til ársins 2022 og að sama skapi var mótið sem halda átti hjá Spretti í Kópavogi 2022 fært til 2024. Nú hefur stjórn LH ákveðið…Lesa meira

true

Smit greint í Grundarfirði og sjö að auki komnir í sóttkví

Búið er að greina einstakling í Grundarfirði með Covid-19 og eru sjö sem tengjast viðkomandi komnir í sóttkví. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri greinir frá þessu í tilkynningu. Frekari sýnatökur eru undirbúnar í dag á vegum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. „Við höfum verið lánsöm hingað til, með fjölda smita, en við skulum búa okkur undir að fleiri smit geti…Lesa meira

true

„Hef mikla trú á þessum hópi og þessari verksmiðju“

Álfheiður Ágústsdóttir tók við starfi forstjóra Elkem Ísland nú um miðjan mánuðinn. Hún var áður framkvæmdastjóri fjármála og innkaupa hjá fyrirtækinu en hefur starfað hjá Elkem frá 2006, fyrst í framleiðslunni og síðar á fjármálasviði. Hún sinnti ýmsum störfum hjá fyrirtækinu samhliða námi í reikningshaldi og endurskoðun en hefur verið í fullu starfi hjá Elkem…Lesa meira

true

Einstakt samband heimasætunnar og ærinnar Tótu

Sól Jónsdóttir heimasæta á bænum Bergi, rétt utan við Grundarfjörð, hefur alist upp stóran hluta ævi sinnar í nánu samneyti við kindina Tótu. Sól er fædd árið 2009 og fyrstu mánuði ævi sinnar svaf hún í barnavagni inni í fjárhúsunum á meðan foreldrarnir sinntu bústörfunum. „Stundum þegar hún vaknaði var hún að hjala við rollurnar…Lesa meira