
Um þessar mundir er rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Bjarni Sæmundsson, í hálfsmánaðar leiðangri í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi. Um borð er unnið að fjölbreyttum verkefnum, m.a. með rækjuvörpu, sjótöku, botngreip, botnkjarnatöku eða neðansjávarmyndavél. Meðal verkefna leiðangursmanna er að meta stofn rækju, rannsaka ungþorsk auk almennra umhverfisrannsókna. Sérstaklega er Arnarfjörður til skoðunar þar sem meta á áhrif fiskeldis…Lesa meira








