Fréttir

true

Tveir til viðbótar greindust í Stykkishólmi

Af þeim 42 sem fóru í skimun í Stykkishólmi í gær reyndust tveir smitaðir, en einstaklingarnir voru báðir í sóttkví. Samkvæmt samantekt lögreglu eru nú níu skráðir í einangrun í Stykkishólmi með greind COVID-19 smit, þar af er einn sem tekur út einangrun í Reykjavík, en 23 eru skráðir í sóttkví. Á Akranesi eru tveir…Lesa meira

true

„Þetta hefur áhrif svo víða“

Covid-19 faraldurinn hefur sett mark sitt á flesta ef ekki alla kima mannlífsins það sem af er ári, þar með talin viðskipti og þjónustu. Skessuhorn tók hús á örfáum verslunareigendum á Akranesi og spurði þá hvernig reksturinn hefði gengið það sem af er ári, í ljósi faraldursins og þeirra takmarkana sem landsmönnum hafa verið settar…Lesa meira

true

Skimað á Akranesi á morgun

Undanfarna daga hefur verið unnið að því að hægt verði að framkvæma skimunarsýnatökur á Akranesi fyrir fólk í sóttkví og á sjöunda degi sóttkvíar. Á morgun, föstudaginn 25. september, verður gerð tilraun með slíkt. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu heilsugæslunnar á Akranesi. Þeir sem hafa verið boðaðir í skimun á morgun vegna sóttkvíar…Lesa meira

true

33 ný innanlandssmit

Alls greindust 33 ný Covid-19 smit hér á landi í gær. Af þeim sem greindust voru 14 í sóttkví. Ríflega tvö þúsund sýni voru tekin í innanlands í gær, 2.073 nánar til tekið. Eru það umtalsvert færri sýni en greind voru sólarhringinn á undan. Nú eru 352 í einangrun með Covid-19 á landinu, þar af…Lesa meira

true

Banaslys á Hellissandi í gær

Banaslys varð á Hellissandi í gærmorgun. Maður varð undir bifreið sem hann var að vinna við á bifreiðaverkstæði, með þeim afleiðingum að hann lést. Tildrög slyssins eru til rannsóknar. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað eða að nokkur annar hafi átt aðild að slysinu, að því er fram kemur í tilkynningu…Lesa meira

true

Hópar þurfi ekki að fara um langan veg í sýnatöku

Aðgerðastjórn á Vesturlandi vonast til þess að þurfi ekki að senda stóra hópa fólks, sem kunna að vera útsettir fyrir Covid-19 smiti, um langan veg til sýnatöku eins og raunin varð um sýnatöku vegna tilviks tengdu íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Vesturlandi. Sem kunnugt er þurfti stór…Lesa meira

true

Máttu sætta sig við tap á heimavelli

Skagakonur máttu játa sig sigraðar gegn Aftureldingu, 1-3, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Akranesvelli í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var markalaus en dró til tíðinda á 58. mínútu leiksins þegar gestirnir úr Mosfellsbæ fengu vítaspyrnu. Alda Ólafsdóttir fór á punktinn og kom Aftureldingu yfir. Ragna Guðrún Guðmundsdóttir bætti öðru…Lesa meira

true

Sóttu þrjú stig norður

Káramenn sóttu góðan sigur norður til Dalvíkur í gærkvöldi þegar þeir mættu Dalvík/Reyni í 2. deild karla í knattspyrnu. Þegar lokaflautan gall hafði Skagaliðið skorað tvö mörk gegn einu og fór því með þrjú stig í farteskinu heim til Akraness. Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Heimamenn fengu óskabyrjun þegar Áki Sölvason kom Dalvík/Reyni…Lesa meira

true

Stækkun Akraneskirkjugarðs er nú lokið

Síðdegis í gær var við hátíðlega athöfn vígð stækkun Akraneskirkjugarðs við Garða. Fyrsta gröf í nýja garðinum var svo tekin í morgun. Síðasta stækkun kirkjugarðsins er frá árinu 2000 og langt komin að fyllast, sem og önnur eldri grafarstæði. Sökum þess að grunnt er á klapparholt undir nýja grafarstæðinu í norðanverðum garðinum var það hækkað…Lesa meira

true

Ráðstafanir í Grunnskóla Grundarfjarðar

Í Grunnskóla Grundarfjarðar hefur verið ákveðið að út þessa viku, og jafnvel lengur, verði starfsfólki skipt upp í hópa til að minnka smithættu. Frá þessu er greint á Facebook síðu skólans. Er þessi ákvörðun tekin í ljósi þess að smitum hefur verið að fjölga á Snæfellsnesi og tveir starfsmenn skólans voru settir í úrvinnslusóttkví þar…Lesa meira