Fréttir

true

Sóttu þrjú stig norður

Káramenn sóttu góðan sigur norður til Dalvíkur í gærkvöldi þegar þeir mættu Dalvík/Reyni í 2. deild karla í knattspyrnu. Þegar lokaflautan gall hafði Skagaliðið skorað tvö mörk gegn einu og fór því með þrjú stig í farteskinu heim til Akraness. Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Heimamenn fengu óskabyrjun þegar Áki Sölvason kom Dalvík/Reyni…Lesa meira

true

Stækkun Akraneskirkjugarðs er nú lokið

Síðdegis í gær var við hátíðlega athöfn vígð stækkun Akraneskirkjugarðs við Garða. Fyrsta gröf í nýja garðinum var svo tekin í morgun. Síðasta stækkun kirkjugarðsins er frá árinu 2000 og langt komin að fyllast, sem og önnur eldri grafarstæði. Sökum þess að grunnt er á klapparholt undir nýja grafarstæðinu í norðanverðum garðinum var það hækkað…Lesa meira

true

Ráðstafanir í Grunnskóla Grundarfjarðar

Í Grunnskóla Grundarfjarðar hefur verið ákveðið að út þessa viku, og jafnvel lengur, verði starfsfólki skipt upp í hópa til að minnka smithættu. Frá þessu er greint á Facebook síðu skólans. Er þessi ákvörðun tekin í ljósi þess að smitum hefur verið að fjölga á Snæfellsnesi og tveir starfsmenn skólans voru settir í úrvinnslusóttkví þar…Lesa meira

true

Fáliðaðar Snæfellskonur töpuðu fyrsta leiknum

Snæfell mátti sætta sig við tap gegn nýliðum Fjölnis, 91-60, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik. Viðureignin fór fram í Grafarvogi í gærkvöldi. Snæfellskonur voru fáliðaðar, en vegna hópsmits Covid-19 í Stykkishólmi gat liðið aðeins teflt fram sjö leikmönnum. Aðrir leikmenn liðsins eru í sóttkví. Munar heldur betur um minna…Lesa meira

true

Spennusigur í fyrsta leik

Skallagrímur vann þriggja stiga sigur á Haukum í spennandi leik, 51-54, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnarfirði í gærkvöldi. Mikill haustbragur var á liðunum í upphafi leiks og lítið skorað framan af fyrsta leikhluta. Þegar sjö mínútur voru liðnar var staðan 6-6. En þá náðu Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Síðasta sýningin í Hallsteinssal verður opnuð á mánudaginn

Heimili Guðmundar Sigurðssonar og Hildar Þorsteinsdóttur stendur á gróðurvaxinni og fallegri lóð í Garðabænum. Þegar inn er komið má sjá fjölbreytt listaverk um alla veggi eftir listamenn allsstaðar að úr heiminum. „Endilega skoðaðu þig um,“ sagði Guðmundur við blaðamann um leið og hann raðaði kræsingum á bakka og hafði til kaffi með aðstoð Hildar. Við…Lesa meira

true

Fjölmenningarhátíðinni aflýst

Fjölmenningarhátíð Snæfellsbæjar, sem haldin hefur verið í október ár hvert, hefur verið aflýst að þessu sinni vegna aðstæðna í samfélaginu. „Það er ekki fyrirséð að hátíðin geti farið fram með óbreyttu sniði í ár og því er það samfélagsleg ábyrgð skipuleggjenda að aflýsa henni að svo stöddu,“ segir um málið á vef Snæfellsbæjar. Hátíðin hefur…Lesa meira

true

„Erum allar í þessu til að vinna og ná árangri“

– segir Guðrún Ámundadóttir, þjálfari Skallagríms Skallagrímur hefur leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í kvöld, miðvikudaginn 23. október, þegar liðið mætir Haukum í Hafnarfirði. Skallagrímskonur áttu góðu gengi að fagna í körfunni síðasta vetur. Liðið varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins í febrúar og sat í 4. sæti deildarinnar þegar tímabilið…Lesa meira

true

Yfir áttatíu í sóttkví í landshlutanum

Lögreglan á Vesturlandi hefur hafið birtingu á tölum sem tengjast Covid-19 faraldrinum hér í landshlutanum, eins og greint var frá í Skessuhorni vikunnar. Tölurnar eru flokkaðar út frá starfssvæði heilsugæslustöðva, eins og lesendur fengu að venjast í vor. Fyrstu tölurnar voru birtar á Facebook-síðu lögreglunnar í umdæminu nú laust fyrir kl. 15:00. Þar kemur fram…Lesa meira

true

„Markmiðið er að fara í úrslitakeppnina“

– segir Halldór Steingrímsson, þjálfari Snæfells Keppni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik hefst í kvöld, miðvikudaginn 23. október. Í opnunarleiknum mæta Snæfellskonur liði Fjölnis á útivelli kl. 18:30, en aðrir leiki hefjast þremur korterum síðar. Snæfellsliðið vitist ekki finna almennilega taktinn á síðasta keppnistímabili og sat í 6. sæti deildarinnar þegar keppni í Íslandsmótinu…Lesa meira