Fréttir

true

Frumvarp um einnota drykkjarvöruumbúðir

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar nú eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Það hefur verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda og er athugasemdafrestur til 3. október. Með frumvarpinu er ætlunin að fylgja eftir hluta þeirra tillagna sem fram koma í skýrslu starfshóps…Lesa meira

true

Sigraðar á Sauðárkróki

Skagakonur máttu játa sig sigraðar gegn toppliði Tindastóls, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Sauðárkróki á laugardaginn og lauk leiknum með 2-0 sigri heimaliðsins. Það var Lára Mist Baldursdóttir sem kom Tindastóli yfir á 34. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og Stólarnir því 1-0…Lesa meira

true

Skallagrímskonur eru Meistarar meistaranna

Skallagrímur sigraði Val, 74-68, þegar leikið var um titilinn Meistarar meistaranna í körfuknattleik kvenna. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Nokkur haustbragur var á leik liðanna framan af leik. Lítið var skorað í upphafi og staðan var 2-2 eftir þrjár mínútur. Liðin tóku þó við sér eftir því sem leið á og Valur leiddi 14-17…Lesa meira

true

Frestuðu leitum um viku vegna veðurs

Veður var víða slæmt um helgina og lítt fallið til smalamennsku á fjöllum. Af þeim sökum var á nokkrum stöðum smalamennskum frestað, eða jafnvel slegið saman annarri og þriðju leit. Grundfirðingar voru í þeim hópi sem frestuðu leitum. Frá því var greint á heimasíðu bæjarfélagsins að vegna veðurs hafi göngum og réttum, sem vera áttu…Lesa meira

true

Tvö ný frumvörp um jafnréttismál væntanleg frá forsætisráðherra

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn tvö frumvörp til nýrra jafnréttislaga. Annars vegar frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og hins vegar frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála. Síðarnefnda frumvarpið lýtur að skipulagi á þeirri stjórnsýslu sem lögð er til að gildi á sviði jafnréttismála. „Ný jafnréttislög eru tímabær og…Lesa meira

true

Var með öryggisbeltið undir handarkrikanum

Farþegi sem lést af völdum áverka sinna eftir árekstur á Borgarfjarðarbraut við Grjóteyri í september í fyrra var með bílbeltið ranglega spennt. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur líkur á því farþeginn hefði lifað slysið af hefði öryggisbeltið verið spennt með réttum hætti. Fram kemur í skýrslu nefndarinnar að Nissan-jepplingi hafi verið ekið austur Borgarfjarðarbraut að morgni dags.…Lesa meira

true

Horfið verður til heimanáms næstu viku í FVA

Í dag var haldinn fundur menntamálaráðherra og skólastjórnenda framhaldsskólanna. Rætt var um viðbrögð við nýrri bylgju smita vegna COVID-19. „Ekki hefur verið lagt til að breyta núgildandi sóttvarnarreglum á landsvísu en í ljósi þess að smit er á sveimi á Skaganum, og beðið þess að hægt sé að taka sýni úr nemendum FVA í sóttkví,…Lesa meira

true

Fjórir smitaðir á Vesturlandi og 26 í sóttkví

Í gær voru greind 38 ný smit af Covid-19 innanlands. Það er helmingi minna en daginn áður, en mun færri sýni voru tekin í gær. 21 af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu. Á landsvísu eru nú 215 í einangrun og 1.290 í sóttkví. Tveir liggja á sjúkrahúsi. Hér á Vesturlandi…Lesa meira

true

Leikur meistara meistaranna verður án áhorfenda

Að beiðni almannavarna, um að íþróttahreyfingin sýni frumkvæði varðandi sóttvarnir, ákvað stjórn Körfuknattleikssambands Íslands að leikir helgarinnar í meistaraflokkum, það er æfingaleikir meistaraflokka og meistarar meistaranna í kvennaflokki, fari fram án áhorfenda. Jafnframt var því beint til foreldra/aðstandenda leikmanna í yngri flokkum að mæta ekki í íþróttahúsin til að horfa á þá leiki sem fram…Lesa meira

true

Kóvidfaraldurinn kominn á fullan skrið að nýju

Fjöldi greindra kórónuveirusmita í landinu tók heljarstökk í gær, þegar 75 ný smit greindust innanlands. Svo mörg smit hafa ekki verið greind á einum degi frá því 1. apríl síðastliðinn, þegar 99 smit voru greind á einum degi. Helmingur þeirra sem greindust í gær höfðu verið í sóttkví. Í gær voru tekin um 4.100 sýni…Lesa meira